Mikilvægt að haldið sé rétt á spilunum til að lágmarka skaðleg áhrif sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 4. febrúar 2016 10:00 Frá undirritun samkomulags SALEK-hópsins í október í fyrra. vísir/pjetur
Nýgerður kjarasamningur Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem byggir á SALEK rammasamkomulaginu frá því í október, er dýr og því mikilvægt að haldið sé mjög vel á spilunum í hagstjórn til að lágmarka skaðleg áhrif eftir fremsta megni. Líkur á aukinni verðbólgu hafa eflaust aukist með þessum samningi, en hann mun væntanlega líka leiða til minni óvissu í hagkerfinu sem er ekki síður mikilvægt. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri Hagsjá Landsbankans en þar segir jafnframt að mótvægisaðgerðir stjórnvalda skipti miklu máli og því mikilvægt að framkvæmd þeirra takist vel.Friður á vinnumarkaði ekki ókeypis Kjarasamningurinn á að gilda frá ársbyrjun 2016 og fram til ársloka 2018. Áður umsamdar launabreytingar á þessu ári eru færðar fram og muni gilda frá 1.janúar í stað 1.maí. „Mikilvægt merki um nýja nálgun og ný vinnubrögð er að þessi samningur verður borinn upp til samþykktar í einni sameiginlegri atkvæðagreiðslu innan ASÍ. Það felur í sér að talið verður upp úr einum sameiginlegum potti í stað margra smærri,“ segir í Hagsjánni. Þá segir að um sé að ræða dýran samning, enda sé friður á vinnumarkaði í þetta langan tíma ekki ókeypis. Samtök atvinnulífsins meti kostnaðaraukningu af þessum samningi, að meðtöldum auknum mótframlögum í lífeyrissjóði, sem sex prósent til viðbótar við þann eldri. Samtökin hafi fengið vilyrði fyrir mótvægisaðgerðum af hálfu stjórnvalda sem fyrst og fremst felist í lækkun tryggingagjalds. „Stefnt virðist að því að tryggingagjald lækki um 0,5 prósentustig á þessu ári, sem gæti þýtt yfir fjögurra milljarða króna lækkun álaga á atvinnulífið,“ segir í Hagsjá. Stjórnvöld hafi þó ekki opinberað tillögur sínar um lækkun tryggingagjalds, en að líkleg niðurstaða sé talin að gjaldið lækki um 1,5 prósentustig á samningstímanum.Erfitt að spá fyrir um afdrif húsnæðistillaga Jafnframt kemur fram að húsnæðismálinu kunni að skipta máli. Af hálfu ASÍ hefur verið lögð áhersla á að ákvæði gildandi samninga um endurskoðun samningsforsenda í febrúar standi og að sérstaklega verði horft til efnda ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem hafi verið mikilvægar forsendur við gerð kjarasamninga á síðasta ári. „Tillögur félagsmálaráðherra í húsnæðismálum eru umdeildar og erfitt að spá fyrir um afdrif þeirra. Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá í fyrra átti t.d að ljúka byggingu 500 leiguíbúða á þessu ári og 2.300 alls á árunum 2016-2016. Augljóst virðist að ekki verður hægt að efna þá yfirlýsingu eins og hún var upphaflega gefin út. Þá stendur sú spurning eftir hversu mikla áherslu ASÍ leggur á að þessi yfirlýsing verði efnd og hvort þetta mál geti staðið í vegi fyrir samþykkt samningsins.“
Tengdar fréttir Máli Verkalýðsfélags Akraness vegna SALEK vísað frá Félagsdómur vísaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag frá máli Verkalýðsfélags Akraness gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 29. janúar 2016 17:23 Fjölmennasta atkvæðagreiðsla í aldarsögu ASÍ Um 80 þúsund félagsmenn í verkalýðsfélögum innan ASÍ greiða brátt sameiginlega atkvæði um nýjan kjarasamning til þriggja ára. 26. janúar 2016 12:58 Samningi landað við ríkið eftir 27 ára bið Um miðjan mánuð kemur í ljós hvort samningar sem skrifað var undir í Karphúsinu aðfaranótt þriðjudags verði samþykktir. Verkfalli vélstjóra og skipstjórnarmanna var frestað og verkfalli flugvirkja hjá Samgöngustofu aflýst. 3. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Sjá meira
Máli Verkalýðsfélags Akraness vegna SALEK vísað frá Félagsdómur vísaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag frá máli Verkalýðsfélags Akraness gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 29. janúar 2016 17:23
Fjölmennasta atkvæðagreiðsla í aldarsögu ASÍ Um 80 þúsund félagsmenn í verkalýðsfélögum innan ASÍ greiða brátt sameiginlega atkvæði um nýjan kjarasamning til þriggja ára. 26. janúar 2016 12:58
Samningi landað við ríkið eftir 27 ára bið Um miðjan mánuð kemur í ljós hvort samningar sem skrifað var undir í Karphúsinu aðfaranótt þriðjudags verði samþykktir. Verkfalli vélstjóra og skipstjórnarmanna var frestað og verkfalli flugvirkja hjá Samgöngustofu aflýst. 3. febrúar 2016 07:00