Tölur benda til minni endurvinnslu í fyrra Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. janúar 2016 07:00 Helgi Lárusson. framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar. vísir/valli
Fyrstu tölur um skil á skilagjaldsskyldum umbúðum, gler- og plastflöskum og dósum, benda til þess að minna hlutfalli umbúða hafi verið skilað í fyrra en árin á undan. Þó gæti það breyst þar sem ekki er von á lokatölum fyrir árið 2015 fyrr en í lok febrúar. Frá þessu greinir Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar. „Það er erfitt að segja hvað nákvæmlega veldur, en skýring gæti verið í því að nokkur aukning er í drykkjargleri sem hefur lægra skilahlutfall og því að útlendingar sem ferðast hingað eru margir ókunnir okkar skilakerfi,“ segir Helgi. Skil frá árinu 2007 hafa hins vegar aukist en þá voru skil í sögulegu lágmarki, um 78 prósent. Síðustu ár hafa skil hins vegar verið um 88 prósent. Alls hefur Endurvinnslan tekið á móti um tveimur milljörðum umbúða frá árinu 1989. Helgi segir samanburð við önnur lönd hagstæðan Íslandi, meira að segja við hin Norðurlöndin. „Reglur þar leyfa að bætt sé við skil í skilakerfi öðrum endurheimtum umbúðum, til dæmis úr heimilissorpi, sem lagar opinberar birtar tölur frá þeim,“ segir Helgi. Hann segir þann árangur sem náðst hefur því að þakka að Íslendingar taki við beygluðum umbúðum, einir Norðurlanda. Hins vegar er von á breytingum á þeirri reglu þar sem Endurvinnslan, í samstarfi við Sorpu, Skáta, Plastiðjuna Bjarg og Þroskahjálp, vinna að því að setja upp vélvæddar afgreiðslustöðvar til að auðvelda viðskiptavinum að koma með umbúðir. Þær vélar taka ekki á móti beygluðum umbúðum.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira