Innlent

Tölur benda til minni endurvinnslu í fyrra

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Helgi Lárusson. framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar.
Helgi Lárusson. framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar. vísir/valli
Fyrstu tölur um skil á skilagjaldsskyldum umbúðum, gler- og plastflöskum og dósum, benda til þess að minna hlutfalli umbúða hafi verið skilað í fyrra en árin á undan. Þó gæti það breyst þar sem ekki er von á lokatölum fyrir árið 2015 fyrr en í lok febrúar. Frá þessu greinir Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar.

„Það er erfitt að segja hvað nákvæmlega veldur, en skýring gæti verið í því að nokkur aukning er í drykkjargleri sem hefur lægra skilahlutfall og því að útlendingar sem ferðast hingað eru margir ókunnir okkar skilakerfi,“ segir Helgi.

Skil frá árinu 2007 hafa hins vegar aukist en þá voru skil í sögulegu lágmarki, um 78 prósent. Síðustu ár hafa skil hins vegar verið um 88 prósent. Alls hefur Endurvinnslan tekið á móti um tveimur milljörðum umbúða frá árinu 1989.

Helgi segir samanburð við önnur lönd hagstæðan Íslandi, meira að segja við hin Norðurlöndin. „Reglur þar leyfa að bætt sé við skil í skilakerfi öðrum endurheimtum umbúðum, til dæmis úr heimilissorpi, sem lagar opinberar birtar tölur frá þeim,“ segir Helgi. Hann segir þann árangur sem náðst hefur því að þakka að Íslendingar taki við beygluðum umbúðum, einir Norðurlanda.

Hins vegar er von á breytingum á þeirri reglu þar sem Endurvinnslan, í samstarfi við Sorpu, Skáta, Plastiðjuna Bjarg og Þroskahjálp, vinna að því að setja upp vélvæddar afgreiðslustöðvar til að auðvelda viðskiptavinum að koma með umbúðir. Þær vélar taka ekki á móti beygluðum umbúðum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×