Erlent

Ójöfnuðurinn heldur fólki í fátækt

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Í skýrslunni segir að alþjóðlegt kerfi skattaundanskota komi í veg fyrir að fátækari lönd fái þau úrræði sem þarf til að takast á við fátækt.
Í skýrslunni segir að alþjóðlegt kerfi skattaundanskota komi í veg fyrir að fátækari lönd fái þau úrræði sem þarf til að takast á við fátækt. Fréttablaðið/EPA
Ríkasta prósent jarðarbúa á jafn mikinn auð eins og öll hin 99 prósentin til samans. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá alþjóðlegu hjálparsamtökunum Oxfam.

Samtökin skora á leiðtoga heims að breyta þessu ástandi og draga úr ójöfnuði í staðinn fyrir að láta hann aukast jafnt og þétt. „Þeir sem verja þetta ástand segja að þau sem láta ójöfnuðinn trufla sig stjórnist af pólitík öfundarinnar,“ segir í skýrslunni frá Oxfam. „Þeir benda oft á að fólki sem býr við örbirgð hafi fækkað og það sanni að ójöfnuður sé ekki vandamál. En þarna missa þeir algerlega marks.“

Oxfam-samtökin segjast að sjálfsögðu fagna þeim miklu framförum sem hafið orðið undanfarna áratugi. Á tuttugu árum, frá 1990 til 2010, hafi tekist að fækka um helming þeim jarðarbúum sem búa við algera örbirgð. „En samt er það svo, að hefði ójöfnuður ekki vaxið innan landanna á þessu tímabili, þá hefðu 200 milljónir manna til viðbótar losnað út úr fátækt. Sú tala hefði getað hækkað í 700 milljónir ef fátækir hefðu fengið meira út úr hagvextinum en hinir ríku,“ segja skýrsluhöfundar.

Skýrslan er birt í sömu vikunni og hin árlega ráðstefna helstu valdaafla heimsins er haldin í Davos í Sviss. Höfundar skýrslunnar segja að leiðtogar heims eigi að gera það að forgangsverkefni sínu að útrýma skattaskjólum, sem auðkýfingar og stærstu fyrirtæki heims notfæri sér óspart.

„Þetta alþjóðlega kerfi skatta­undan­skota er að sjúga lífið úr velferðarríkjunum í hinum auðuga hluta heimsins,“ segir í skýrslunni. „Það kemur einnig í veg fyrir að fátækari lönd fái þau úrræði sem þarf til að takast á við fátækt.“ 

Ríkasta fólkið 

62 einstaklingar eiga jafn mikið og fátækari helmingur mannkyns, samtals 3,6 milljarðar manns. Árið 2010 voru það 388 manns sem áttu jafn mikið og fátækari helmingur mann­kynsins.

230.000 milljarðar króna er auður hinna 62 ríkustu einstaklinga heims metinn á. Auður þeirra hefur vaxið um 44 prósent frá árinu 2010, eða um 70 þúsund milljarða.

l 9 af hverjum tíu af 200 fyrirtækjum, sem Oxfam skoðaði, hafa hreiðrað um sig í að minnsta kosti einu skattaskjóli. Þarna á meðal eru flest stærstu fyrirtæki heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×