Móðirin sem var dæmd fyrir gróft ofbeldi hefur áfrýjað sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. nóvember 2016 11:23 Konan var dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gagnvart fimm ungum börnum sínum. Vísir/GVA
Konan sem dæmd var í átján mánaða fangelsi í september fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gagnvart fimm börnum sínum hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við Vísi. Konan, sem er þrjátíu og fjögurra ára, var dæmd fyrir alvarleg og langvarandi ofbeldisbrot gagnvart börnum sínum sem eru á aldrinum þriggja til fjórtán ára. Hún var sögð hafa beitt þau andlegum og líkamlegum refsingum, haft í hótunum við þau, ógnað þeim, sýnt þeim vanvirðandi háttsemi, sært þau og móðgað. Gagnvart yngstu börnunum, tveimur drengjum fæddum 2012 og 2013, var hún sögð hafa tekið þá upp og hrist þá, hent þeim í rúmið þegar hún var að svæfa þá, slegið þá og tekið fyrir vit þeirra þegar þeir grétu. Þá var hún sökuð um að hafa í nokkur skipti sparað í eldri börn sín, stúlku fæddri 2002 og drengjum fæddum 2004 og 2007, slegið þau, togað í hár þeirra, hrint þeim og slegið þeim utan í veggi og hluti, tekið þau kverkataki, kastað hlutum í þau, læst þau úti og haft í hótunum um að gera þeim illt eða drepa þau, svo fátt eitt sé nefnt. Málefni barnanna höfðu verið í vinnslu hjá Barnavernd Reykjavíkur í tíu ár, eða allt þar til farið var fram á lögreglurannsókn árið 2015 á ætluðu ofbeldi konunnar gagnvart börnunum. Konan hefur haldið fram sakleysi sínu í málinu. Auk fangelsisdómsins var henni gert að greiða börnunum samtals fjórar milljónir króna í skaðabætur. Hún hefur verið svipt forræði yfir börnunum, samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar. Þá hefur konan verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gegn barnsföður sínum, en hún er sökuð um að hafa veist að honum með hnífi á síðasta ári, að því er greint er frá á vef Nútímans.
Tengdar fréttir Átján mánaða fangelsi fyrir alvarleg og ítrekuð ofbeldisbrot gagnvart fimm börnum sínum Þrjátíu og fjögurra ára kona var dæmd í héraðsdómi fyrir fjölmörg brot gagnvart börnum sínum. 28. september 2016 17:47 Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira
Átján mánaða fangelsi fyrir alvarleg og ítrekuð ofbeldisbrot gagnvart fimm börnum sínum Þrjátíu og fjögurra ára kona var dæmd í héraðsdómi fyrir fjölmörg brot gagnvart börnum sínum. 28. september 2016 17:47