Stefán Máni handtekinn við Blönduós Jakob Bjarnar skrifar 11. nóvember 2016 12:19 Stefán Máni lét sér hvergi bregða, játaði undanbragðalaust en brotið kostaði 15 þúsund krónur og þrjá punkta. tómas
Stefán Máni rithöfundur var að aka suður á bóginn nú áðan frá Akureyri. Hann var gripinn fyrir fyrir að fara yfir á rauðu ljósi af Blönduóslöggunni. „Við erum komnir úr löggubílnum,“ segir Tómas Hermannsson útgefandi Stefáns Mána sem er með honum í för. En Vísir náði tali af þeim félögum þar sem þeir voru að koma niður af Holtavörðuheiðinni. „Auðvitað var hann að keyra. Hann fór yfir á rauðu. Það voru framkvæmdir þarna við Blönduós,“ segir Tómas. Og bætir því við að löggan hafi verið hress en þó ekki kát í fyrstu, og sögðu við Stefán Mána: Þú áttar þig á því að þú keyrðir yfir á rauðu ljósi? En hann fór hins vegar refjalaust yfir í lögreglubílinn og játaði allt á sig. Undanbragðalaust. Og útgefandinn skar hann úr snörunni. Með kortinu. Þetta kostaði fimmtán þúsund kall og þrjá punkta,“ segir Tómas.Glæpasagnahöfundurinn Stefán Máni segir að nú hafi komið sér vel að vera góðkunningi lögreglunnar.tómas„Það kom sér vel að vera góðkunningi lögreglunnar,“ bætir glæpasagnahöfundurinn Stefán Máni við. Þeir eru að ferðast í snarvitlausu veðri en í bók Stefáns Mána, Grimmd, er einmitt fjallað um bílaeltingaleik norður á land. Tómas segir að sér hafi ekki orðið um sel þegar Stefán Máni hafði orð á því að aðstæður minntu á atriði úr Grimmd. Þeir Tómas og Stefán Máni voru að koma frá Akureyri þar sem þeir voru að samfagna með Arnari Má Arngrímssyni sem hlaut í síðustu viku Norðurlandaráðsverðlaun fyrir bók sína Sölvasaga unglings. En Tómas í Sögum gefur hana einmitt út líka. Og fóru svo að sjá Baraflokkinn á Græna hattinum. En, lentu sem sagt í þessum hremmingum á heimleiðinni. Stefán Máni var að senda frá sér nýja bók, þá fjórðu sem fjallar um lögreglumanninn Hörð Grímsson. Hún heitir Svarti galdur og hefur hún þegar vakið mikla athygli og jafnvel óhug því kápan er eftiröpun á hinni helgu bók, sem sagt biblíunni og segir Tómas að ýmsum hafi brugðið í brún.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Sjá meira