Fá að kryfja líkið sem fannst í fjörunni í Grindavík Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. nóvember 2016 16:17 Umrædd skúta. Mynd/LHG
Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og veitt lögreglunni á Suðurnesjum leyfi til að framkvæma réttarkrufningi á líkinu sem fannst við brak franskrar skútu í fjörunni í Grindavík.Ekkert hafði spurst til skútunnar frá því í sumar. Skútan hafði siglt frá Portúgal þann 7. júlí síðastliðinn og hafði áætlað komu til Azoreyja þann 16. júlí. Einn maður var í áhöfn, hinn 63 ára gamli Joseph Le Goff. Talið er að líkið sem fannst sé af skipstjóranum. Að mati lögreglunnar er ekki hægt að útiloka að dauðsfall hins látna verði rakið til refsiverðrar háttsemi og af þeim sökum sé nauðsynlegt að kryfja lík viðkomandi einstaklings. Beiðni lögreglu um krufningu var hafnað af héraðsdómi þar sem ekki hafi verið leitað samþykkis fjölskyldumeðlima. Segir í greinargerð lögreglu til Hæstaréttar að ekki liggi fyrir af hvaða einstaklingi þær líkamsleifar sem um ræðir séu. Að mati Hæstaréttar eru skilyrði laga vegna réttarkrufningar uppfyllt en þar segir að réttarlæknisfræðileg líkskoðun skuli fara fram þegar lögregla telur það nauðsynlegt í þágu rannsóknar. Einnig skal framkvæma réttarkrufningu, ef nauðsyn þykir, og skal leita úrskurðar dómara um krufningu nema nánasti venslamaður eða nánustu venslamenn hins látna samþykki að hún fari fram. Er því lögreglu heimilt að framkvæmda réttarkrufningu að mati Hæstaréttar.
Tengdar fréttir Lík franska skipstjórans að öllum líkindum fundið Lík fannst í fjörunni í Grindavík á svipuðum stað og brak af franskri skútu sem ekkert hafði spurst til síðan í sumar, þar til neyðarboð barst frá henni í gær. 27. október 2016 16:11 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira
Lík franska skipstjórans að öllum líkindum fundið Lík fannst í fjörunni í Grindavík á svipuðum stað og brak af franskri skútu sem ekkert hafði spurst til síðan í sumar, þar til neyðarboð barst frá henni í gær. 27. október 2016 16:11