Setja upp vatnsrennibraut í Bankastræti á morgun Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. júlí 2016 15:20
Slip´N´Slide vatnsrennibraut verður opnuð í Bankastræti á hádegi á morgun og verður hægt að skella sér rennblautur niður Bankastrætið til klukkan 18.00 sama dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nova en fjarskiptafyrirtækið stendur fyrir brautinni í samstarfi við Samsung. „Hliðar brautarinnar sem sett verður upp eru tæpur metri á hæð, hún er þriggja metra breið og volgt vatn rennur niður hana,“ segir í tilkynningunni. „Tjald verður efst í Bankastrætinu þar sem fólk getur skipt yfir í baðfötin. Fjórir starfsmenn munu stýra röðinni í rennibrautina, tveir verða meðfram brautinni og svo verða aðrir fjórir neðst til að sjá til þess að allir séu öruggir. Sundlaug og öryggishlið verða neðst í brautinni til að taka á móti að taka á móti þeim sem koma rennblautir niður á fljúgandi ferð.“ Til stóð að setja upp vatnsrennibrautina þann 2. júlí síðastliðinn en veðuraðstæður voru ekki með besta móti og því neyddust skipuleggjendur til þess að fresta viðburðinum. Í raun var svo mikill vindur að erfiðlega gekk að koma brautinni aftur inn í geymslu sína eftir að hún hafði verið tekin þaðan. Á morgun er hins vegar spáð ágætisveðri, skýjað, 2 vindstig og 11 til 13 stiga hiti í Reykjavík.
Tengdar fréttir 120 metra löng vatnsrennibraut í Bankastræti „Við verðum með tjald efst í Bankastrætinu þar sem fólk getur skipt yfir í baðfötin.“ 1. júlí 2016 20:58 Mest lesið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Sjá meira
120 metra löng vatnsrennibraut í Bankastræti „Við verðum með tjald efst í Bankastrætinu þar sem fólk getur skipt yfir í baðfötin.“ 1. júlí 2016 20:58