Bátaskýli brunnu til kaldra kola við Meðalfellsvatn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. ágúst 2016 14:44 Mikinn reyk lagði frá bátaskýlunum. mynd/sigurþór gíslason
Nokkur bátaskýli við Meðalfellsvatn í Kjós brunnu til kaldra kola í morgun en Sigurþór Gíslason bóndi á Meðalfelli varð var við eldinn rétt fyrir klukkan 11 í morgun. „Við vorum í einhverri kílómeters fjarlægð þegar við sáum reyk þarna og þegar við komum að þessu þá reykur út undan þakinu og út um gluggann svo bara skömmu síðar er þetta bara orðið alelda,“ segir Sigurþór í samtali við Vísi. Um var að ræða lengju af bátaskýlum og telur Sigurþór að um sjö einingar hafi verið í lengjunni. Hann segir að það hafi verið bátar í flestum skýlunum og ýmislegt annað dót en skýlin tilheyra nokkrum sumarhúsum við Meðalfellsvatn. Sigurþór vill ekki leggja mat á hversu mikið tjónið er en gera má ráð fyrri að það sé þó nokkuð, ekki síst ef bátar hafa verið í flestum skýlunum. „Ég tók þarna tímann frá því að ég hringdi í slökkviliðið og þar til skýlin voru bara brunnin til grunna og það var svona rúmur klukkutími sem þetta tók,“ segir Sigurþór. Slökkvistarfið snerist því mest um það að verja aðra lengju af skýlum sem var við hliðina á þeirra sem varð eldinum að bráð og tókst það. „Við vorum þarna með dælu úr sveitinni og svo haugsugu sem við fylltum af vatni. Svo kom auðvitað slökkviliðið og við vorum eiginlega bara að vinna í því að bjarga hinum skýlunum því lengjan brann bara einn tveir og tíu. Það var ekkert hægt að gera til að bjarga neinu þar,“ segir Sigurþór. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tók slökkvistarf á vettvangi tæpan klukkutíma en tveir bílar fóru af stað. Öðrum þeirra var hins vegar snúið til baka þar sem varaslökkvilið úr sveitinni tók einnig þátt í slökkvistarfinu. Ekki liggur fyrir hver eldsupptök voru.Bátaskýlin sem brunnu tilheyrðu sumarhúsum sem standa við Meðalfellsvatn.mynd/sigurþór gíslasonSlökkvistarfið fólst í því að verja bátaskýlin við hliðina á lengjunni sem kviknaði í.mynd/sigurþór gíslasonmynd/sigurþór gíslason
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Sjá meira