Hvikult vopnahlé við lýði í Aleppo og Assad boðar "gjörsigur“ Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 6. maí 2016 07:00 Ungbarni bjargað úr rústum í Aleppo. Nordicphotos/AFP
Tveggja sólarhringa vopnahlé tók gildi í sýrlensku borginni Aleppo í fyrrinótt. Vopnahléi var komið á vegna þrýstings Bandaríkjamanna annars vegar og Rússa hins vegar en undanfarnar tvær vikur hafa harðir bardagar geisað í borginni. Hátt í þrjú hundruð hafa fallið í valinn á þeim tíma. Vopnahléinu í Aleppo er ætlað að tryggja áframhaldandi vopnahlé á landsvísu en bardagarnir í Aleppo hafa ógnað því. Vopnahléinu var komið á í febrúar síðastliðnum til að greiða fyrir friðarviðræðum sem farið hafa fram í svissnesku borginni Genf. Viðræðurnar hafa nú flust til Berlínar. Fréttastofa BBC greinir frá því að þeir íbúar sem hafa gefið sig á tal við fréttastofuna hafi farið út á götu í fyrsta sinn svo vikum skiptir í gær. „Við heyrðum ekki skothvellina og sprengingarnar sem við erum orðin vön. Það er komið nóg af þessum daglegu morðum,“ sagði kaupmaðurinn Sameh Tutunji. Ekki var þó algjör friður í borginni í gær en ríkisfjölmiðlar greindu frá því að einn hefði látist í skotárás uppreisnarmanna í þeim hluta borgarinnar sem er undir stjórn Sýrlandshers. Her ríkisstjórnar forsetans Bashars al-Assad hefur átt í stríði við uppreisnarmenn sem og hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki frá árinu 2011. Assad sendi helsta bandamanni sínum, Vladimír Pútín Rússlandsforseta, skeyti í gær þar sem hann þakkaði Rússum fyrir stuðninginn. Enn fremur sagðist Assad staðráðinn í að vinna gjörsigur á uppreisnarmönnum í borginni og segist hann ætla að „mölbrjóta niður alla andstöðu“.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Sjá meira