Útvarpsþátturinn Skýjum ofar verður 20 ára Stefán Þór Hjartarson skrifar 25. júní 2016 09:00 Þeir Reynir Pálsson, Eldar Ástþórsson, Björn Salvador Kristinsson og Arnþór Snær Sævarsson hafa spilað Drum and bass og Jungle í útvarpsþættinum Skýjum ofar í 20 ár. Vísir/Anton Brink „
Við erum að halda upp á 20 ára afmæli Skýjum ofar á kosninganótt. Við bjóðum að sjálfsögðu alla forsetaframbjóðendur og fráfarandi forseta velkomna að taka nokkur dansspor með okkur á kosninganótt. En Ólafur Ragnar Grímsson var einmitt kosinn forseti í júní 1996 þegar þátturinn Skýjum ofar hóf göngu sína og því getur hann, líkt og við, fagnað 20 árum á toppnum nú í júní. Við höfum verið að fylgjast með kosningabaráttunni og hafa velflestir frambjóðendur talað um mikilvægi beins lýðræðis og að þeim líði vel þegar þeir heimsækja vinnustaði og umgangast almenning og það er náttúrulega fátt lýðræðislegra en að taka nokkur dansspor á kosninganótt þegar maður hefur verið kosinn nýr forseti lýðveldisins þannig að við vonumst til að sjá nýkjörinn forseta á ballinu okkar.“Verður kosningavaka sýnd á sjónvarpsskjá hjá ykkur? „Það stendur nú ekki til, þetta snýst meira um tónlistina og að dansa og skemmta sér. Ég veit ekki alveg hvenær fyrstu tölur koma en ef það dregst inn í nóttina þá auðvitað verðum við að bregðast við því. Við reynum einhvern veginn að upplýsa fólk sem er á dansgólfinu um hvernig staðan er.“Er ekki við hæfi að tónlistin verði stöðvuð og að plötusnúðurinn tilkynni nýjustu tölurnar yfir dansgólfið? „Jú, það verða tilkynningar þegar tölurnar berast.“ Í byrjunarliði kvöldsins verða Addi, Bjössi, Eldar, Ewok, Frímann, Grétar G, Plasmic, Reynir, Skeng, Tandri og Thor. Miðar fást fyrir litlar 1.500 krónur á tix.is og verður ballið haldið á Paloma klukkan 22.00.
Mest lesið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Lífið „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Blóm og plöntur sem þola kuldann Lífið Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Lífið Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Lífið Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Lífið Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið Fleiri fréttir Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Sjá meira