Aðeins eitt lið skorað minna en Ísland Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júní 2016 12:15 Íslensku sóknarmennirnir áttu erfitt uppdráttar gegn frönsku vörninni í gær. vísir/eyþór
Aðeins tvö lið hafa skorað færri mörk en íslenska kvennalandsliðið í handbolta í undankeppni EM 2016.Ísland steinlá, 16-30, fyrir Frökkum í gær og hefur tapað fjórum af fimm leikjum sínum í undankeppninni. Sóknarleikurinn hefur verið aðalvandamál íslenska liðsins en aðeins tvö lið hafa gert færri mörk í undankeppninni. Ísland hefur skorað 91 mark í leikjunum fimm sem er það þriðja minnsta í undankeppninni. Einungis Finnland (71) og Makedónía (74) hafa gert færri. Makedónar hafa reyndar aðeins leikið fjóra leiki og hafa því gert fleiri mörk að meðaltali í leik (18,5) en Ísland (18,2). Íslenska liðið hefur aðeins einu sinni skorað meira en 20 mörk í leik í undankeppninni, í 22-21 tapi fyrir Sviss á útivelli.Karen skoraði sjö af 16 mörkum Íslands gegn Frakklandi.vísir/eyþórKaren Knútsdóttir er langmarkahæst í íslenska liðinu í undankeppninni með 22 mörk, eða 24,2% af öllum mörkum liðsins. Línumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir kemur næst með 12 mörk. Í samtali við Vísi eftir leikinn gegn Frökkum í gær ræddi Karen um vandamál íslenska liðsins í sóknarleiknum. „Mér finnst ég alltaf segja það sama eftir leiki, sóknarleikurinn varð okkur að falli. Það er auðvelt að standa í vörn og berjast og markverðirnir okkar eru góðir en við þurfum meiri hraða og snerpu til að geta gert eitthvað í sókninni,“ sagði Karen. „Við þurfum að draga menn í okkur og vinna stöðuna maður á móti manni en því miður erum við bara langt á eftir þar,“ bætti fyrirliðinn við. Ísland mætir Þýskalandi í Stuttgart á sunnudaginn í síðasta leik sínum í undankeppninni. Leikurinn er jafnframt sá síðasti hjá íslenska liðinu undir stjórn Ágústs Jóhannssonar.
Handbolti Tengdar fréttir Ágúst hættir að þjálfa stelpurnar Landsliðsþjálfari kvenna í handbolta lætur af störfum eftir undankeppni Evrópumótsins. 31. maí 2016 13:15 Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira
Ágúst hættir að þjálfa stelpurnar Landsliðsþjálfari kvenna í handbolta lætur af störfum eftir undankeppni Evrópumótsins. 31. maí 2016 13:15