Karen: Erum búnar að vera á sama stað í 2-3 ár Ingvi Þór Sæmundsson í Valshöllinni skrifar 1. júní 2016 22:10 Karen var langmarkahæst í íslenska liðinu með sjö mörk. vísir/eyþór
Karen Knútsdóttir segir að íslenska kvennalandsliðið í handbolta skorti líkamsstyrk til að glíma við bestu lið heims. „Mér finnst ég alltaf segja það sama eftir leiki, sóknarleikurinn varð okkur að falli. Það er auðvelt að standa í vörn og berjast og markverðirnir okkar eru góðir en við þurfum meiri hraða og snerpu til að geta gert eitthvað í sókninni,“ sagði Karen eftir tapið fyrir Frökkum í undankeppni EM 2016 í kvöld. „Við þurfum að draga menn í okkur og vinna stöðuna maður á móti manni en því miður erum við bara langt á eftir þar,“ bætti Karen við. Karenu finnst íslenska liðið hafa staðið í stað undanfarin ár og vill sjá breytingu þar á. „Við þurfum að fara að lyfta og hlaupa til að geta unnið svona þjóðir eins og Frakka og til að ná lengra. Við erum búnar að vera á sama stað í 2-3 ár, þetta er flatt og það er einhvern veginn ekkert að gerast hjá okkur,“ sagði Karen. Íslenska liðið komst á þrjú stórmót á skömmum tíma en nú eru fjögur ár liðin síðan það var síðast með í lokakeppni. „Auðvitað varð mikil breyting á liðinu og við misstum marga sterka leikmenn. Þetta tekur alveg tíma en það eru fjögur ár síðan við komust síðast á stórmót og það hefur kannski ekki verið mikil og markviss uppbygging í gangi. Við getum ekki endalaust afsakað okkur. Mér finnst við þurfa að leggja aðeins meira á okkur. „Okkur vantar því miður snerpu og styrk, eitthvað sem á að vera auðvelt að laga. Við erum með leikskilninginn og hæfileikana,“ sagði Karen. En finnst henni að Ísland þurfi fleiri leikmenn í atvinnumennsku erlendis? „Ekkert endilega. Það er ekki atvinnumannaumhverfi hérna en þær þurfa kannski að æfa meira. Við erum rosalega fáar sem erum að spila á móti leikmönnum sem æfa tvisvar á dag. Við þurfum kannski að vilja ná lengra, leggja meira á okkur, ég líka. Við allar, íslenska landsliðið, þurfum að vera í betra formi,“ sagði Karen að endingu.
Handbolti Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira