Nám í hjúkrun fast í flöskuhálsi 9. nóvember 2016 07:00 Um 2.800 hjúkrunarfræðingar eru við störf – 900 hætta innan þriggja ára á meðan helmingi færri útskrifast. Vísir/Vilhelm
Skortur á hjúkrunarfræðingum er viðvarandi vandamál á sama tíma og aðsókn í hjúkrunarfræðinám er mikil. Flöskuhálsinn er hins vegar sá að fjárveiting til verklegs náms (klínísks náms) inni á heilbrigðisstofnunum er fjarri því að vera í samræmi við þörfina og takmarkar hversu marga er hægt að mennta. Á hverjum skólavetri tekur Háskóli Íslands (HÍ) inn 120 nýnema í hjúkrunarfræði og Háskólinn á Akureyri (HA) aðra 55 nýnema. Mun fleiri sækjast eftir því að komast í námið og hjá HA sóttu til dæmis rúmlega 200 um á þessu ári. Af þeim hófu 130 nám í haust – en afföllin eru af ýmsum ástæðum. Þessi hópur „keppir“ um plássin 55 á vormisseri fyrsta árs í samkeppnisprófi í desember – sem er tilkomið vegna takmarkana inn í verklega námið. Hjá HÍ er annar háttur hafður á við inntöku nýnema. Þar gildir frammistaða á inntökuprófi og meðaleinkunn úr þremur kjarnagreinum í námi til stúdentsprófs. Fyrsta árs nemendur hafa þannig öðlast rétt til setu í hjúkrunarfræðideild strax í upphafi náms – innan ramma fjöldatakmarkana skólans.Helga JónsdóttirFjárveiting til verklegs hluta námsins er ásteytingarsteinninn og takmarkar fjöldann sem hægt er að taka í nám. Í hnotskurn eru plássin í verklega náminu færri en þörfin segir til um, en ekki síður að þeir sem fá það hlutverk að kenna verðandi kollegum sínum fá aðeins málamyndagreiðslu fyrir. „Kjarninn er sá að eins og staðan er í dag þá er fjárveiting til þess að kenna nemendum í færnisetri og í öllu klínísku námi í skötulíki. Ef við gætum haft launaða kennara á vettvangi og ekki þurft að reiða okkur eins mikið og raunin er á hjúkrunarfræðinga, sem um leið annast stóran hóp sjúklinga, þá gætum við menntað fleiri og samtímis tryggt gæði námsins,“ segir Helga Jónsdóttir, forseti hjúkrunarfræðideildar HÍ. „Hjúkrunarfræðingum sem vinna hjá undirmönnuðum heilbrigðisstofnunum þar sem álagið er mikið finnst það vera byrði að taka á móti hjúkrunarnemum án þess að fá fjárhagslega umbun fyrir,“ segir Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs HA, og bendir á að finna þurfi nýjar leiðir við kennslu hjúkrunarnema og fjölga þannig brautskráðum hjúkrunarfræðingum í samhengi við þörfina í dag – og ekki síður þegar til framtíðar er litið. Í Háskóla Íslands hefur námskrá verið endurskoðuð og gerðar verulegar breytingar til samræmis við þarfir íslensks heilbrigðiskerfis. Eins var byrjað að kenna og starfa eftir nýrri námskrá við Háskólann á Akureyri í haust; var hún stytt og aðlöguð klínísku námi í sérgreinum hjúkrunar þar sem erfiðast hefur verið að koma hjúkrunarnemum í klínískt nám á heilbrigðisstofnunum.Fréttin birst fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira