Dæmi um að læknar fái yfir milljón krónur frá lyfjafyrirtækjum Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. júlí 2016 05:00 Formaður Læknafélags Íslands telur að upphæðirnar skerði dómgreind lækna ekki. Vísir/Getty
Dæmi eru um að lyfjafyrirtæki greiði einstökum læknum hundruð þúsunda í styrki vegna endurmenntunar eða annarra verkefna. Í einstaka tilfellum hafa styrkveitingar farið yfir eina milljón króna. Þetta kemur fram í gögnum sem birt eru á vefsíðu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Þessar upplýsingar eru nú í fyrsta sinn gerðar opinberar. Er það gert í samræmi við nýjar siðareglur EFPIA, Evrópusamtaka lyfjaframleiðenda. Alls birtu 16 lyfjafyrirtæki fjárhagsupplýsingar um samskipti sín við einstaklinga og stofnanir í heilbrigðisgeiranum hér á landi og nema heildargreiðslur þeirra 139 milljónum íslenskra króna.Þorbjörn jónsson, formaður læknaráðs landspítali. heilbrigðismál talsmaður lækna.Á vef Frumtaka segir að stærstan hluta upphæðarinnar megi rekja til verkefna sem tengjast klínískum lyfjarannsóknum og styrkt eru um 96 milljónir króna. Aðrar greiðslur eru til dæmis framlög og styrkir til heilbrigðisstofnana, kostnaður vegna ferða og skráningargjalda á ráðstefnur til símenntunar heilbrigðisstarfsfólks, auk þóknunar fyrir fræðslu, fyrirlestra og sérfræðiráðgjöf. Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, segir að stórt skref sé stigið með því að birta upplýsingarnar. „Það er langbest að þetta sé allt uppi á borðum,“ bætir hann við. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segist telja að upphæðirnar sem læknum hafa verið greiddar séu ekki þess eðlis að þær muni hafa áhrif á dómgreind lækna. „Á þessu geta menn haft mismunandi skoðanir og ég held að þetta séu upphæðir sem rugli alls ekki dómgreind lækna eða valdi því að menn upplifi einhverja óeðlilega hollustu við lyfjafyrirtækið,“ segir Þorbjörn, en bætir því við að styrkirnir geti hins vegar verið mikilvægir fyrir endurmenntun lækna. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 1. júlí 2016
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira