Sakaði nágranna um póststuld og réðst á hann Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. júlí 2016 16:19 Maðurinn taldi að konan hefði stolið póstinum hans. vísir/getty
Karlmaður á sjötugsaldri var í Héraðsdómi Norðurlands eystra á dögunum dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir líkamsárás. Fullnusta refsingarinnar fellur niður haldi maðurinn skilorð í tvö ár. Málsatvik eru þau að í október á síðasta ári kom nágrannakona mannsins til hans með bréf, stílað á hann, sem endað hafði í póstkassa hennar. Maðurinn, sem var undir áhrifum áfengis, brást hinn versti við og sakaði konuna um að stela póstinum hennar. Samkvæmt skýrslu konunnar fyrir dómi svaraði hún þessari framkomu fullum hálsi. Maðurinn hefði þá snúið upp á vinstri hendi hennar og slegið hana í hægri öxl með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgur og mar. Í kjölfarið hafi hún leitað skjóls í íbúð sinni en maðurinn þá sparkað hurðinni að íbúðinni upp. Ákærði neitaði sök. Sagði hann að hann hefði minnst þess að brotaþoli hafi komið að máli við sig þar sem hún hefði læst sig úti. Hann hefði því opnað íbúð hennar með því að sparka hurðina að henni upp. Samskipti þeirra hefðu ekki verið önnur. Þá þvertók hann fyrir að hafa verið undir áhrifum áfengis. Bróðir brotaþola var staddur í íbúð hennar þegar árásin átti sér stað. Framburður hans og lögreglumanns, sem kom á vettvang, þótti renna stoðum undir framburð konunnar og rýra framburð ákæðra. Hann var því sakfelldur. Dóm héraðsdóms má lesa í heild sinni sér.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Tillaga um að fækka varaforsetum felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Sjá meira