Ná norsku stelpurnar í sjötta gullið undir stjórn Þóris? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. desember 2016 15:15 Noregur hefur unnið fimm stórmót undir stjórn Þóris. vísir/anton
Titilvörn norska kvennalandsliðsins í handbolta hefst í kvöld þegar það mætir Rúmeníu í D-riðli á EM í Svíþjóð. Það er óhætt að segja að stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar fái verðugt verkefni í fyrsta leik en Rúmeníu hefur á mjög sterku liði að skipa. Auk Noregs og Rúmeníu eru Króatía og Ólympíumeistarar Rússlands í D-riðlinum sem er leikinn í Helsingborg. Þrjú efstu liðin fara áfram í milliriðla.Kari Aalvik Grimsbø mætir þjálfara sínum í kvöld.vísir/gettyNýr þjálfari Rúmeníu er Spánverjinn Ambros Martín sem hefur komið liðum í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu fjórum sinnum frá 2011 og unnið keppnina tvisvar sinnum, einu sinni með Itxako frá Spáni og einu sinni með ungverska stórliðinu Györ. Með Györ leika tveir af bestu leikmönnum norska landsliðsins; markvörðurinn Kari Aalvik Grimsbø og skyttan Nora Mørk. Línumaðurinn öflugi, Heidi Löke, leikur einnig með Györ og norska landsliðinu en hún er í fríi frá handbolta þar sem hún er barnshafandi. EM í Svíþjóð er tíunda stórmótið sem Þórir fer með norska liðið á en á fimm af þessum mótum hefur Noregur dregist í riðil með Rúmeníu. Það gerðist á HM 2009 og 2015, EM 2014 og 2016 og á Ólympíuleikunum 2016. Auk þess mætti Noregur Rúmeníu í undanúrslitum á HM 2015.Norska liðið fagnar eftir sigur á Hollandi í leiknum um bronsið á Ólympíuleikunum í Ríó.vísir/antonNoregur hefur alltaf haft betur gegn Rúmeníu á stórmótum undir stjórn Þóris. Síðustu tveir sigrarnir voru þó naumir. Í undanúrslitunum á HM 2015 vann Noregur tveggja marka sigur, 35-33, á Rúmeníu eftir framlengingu. Og á Ólympíuleikunum í sumar unnu norsku stelpurnar eins marks sigur, 28-27, í hörkuleik. Níu af sextán leikmönnum í norska EM-hópnum voru í Ólympíuhópnum í sumar. Eins og áður sagði verður Löke ekki með og það munar um minna enda frábær leikmaður. Þrjár í norska hópnum er að fara á sitt fyrsta stórmót. Þetta eru þær Silje Waade, Malin Aune og Kjerstin Boge Solås. Sú síðastnefnda verður ekki 19 ára fyrr en á gamlársdag en hún er yngsti leikmaður Noregs á stórmóti fyrr og síðar. Solås hefur aðeins leikið sex landsleiki, líkt og Waade. Aune er aðeins reyndari en hún á 14 landsleiki að baki.EM í Svíþjóð er tíunda stórmótið sem Þórir fer með norska liðið á.vísir/gettyÞórir hefur náð frábærum árangri með norska liðið síðan hann tók við þjálfun þess 2009. Noregur hefur unnið til verðlauna á átta af níu stórmótum undir stjórn Selfyssingsins; fimm gull, eitt silfur og tvö brons. Eins og áður sagði er Noregur ríkjandi Evrópumeistari. Norska liðið vann það spænska, 28-25, í úrslitaleiknum í Búdapest í Ungverjalandi fyrir tveimur árum.Leikur Noregs og Rúmeníu hefst klukkan 19:45 í kvöld.
Handbolti Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Sjá meira