Stoðsending Arons Elísar dugði ekki til Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. júlí 2016 19:55 Aron Elís lagði upp mark en það dugði skammt. vísir/ernir
Unglingalandsliðsmennirnir Aron Elís Þrándarson og Adam Örn Arnarson voru báðir í byrjunarliði Aalesund sem beið lægri hlut fyrir Strømsgodset, 4-2, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Aalesund er í 12. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 14 umferðir en Strømsgodset í því þriðja með 26 stig, sjö stigum á eftir toppliði Rosenborg. Fyrri hálfleikur var mjög fjörugur en eftir 34. mínútna leik var staðan orðin 2-2. Mostafa Abdellaoue kom Aalesund yfir strax á 5. mínútu en Muhamed Keita jafnaði metin tólf mínútum síðar. Mikkel Kirkeskov varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 26. mínútu. Aalesund átti hins vegar síðasta orðið í fyrri hálfleik þegar Peter Orry Larsen skoraði eftir sendingu Arons Elísar. Þetta var önnur stoðsending Víkingsins á tímabilinu. Í seinni hálfleik reyndust leikmenn Strømsgodset svo sterkari og tryggðu sér sigurinn með mörkum frá Lars Vilsvik og Flamur Kastrati. Aron Elís lék allan leikinn en Adam Örn fór af velli á 85. mínútu. Í hans stað kom Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Biður Dag afsökunar Handbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Sjá meira