Skaðabótamáli gegn Kaupþingsmönnum vísað frá héraðsdómi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. júlí 2016 23:19
Héraðsdómur Vesturlands vísaði fyrir helgi máli Samtaka sparifjáreigenda gegn forsvarsmönnum Kaupþings frá dómi. Það var mat dómsins að málið hefði ekki verið háð fyrir réttum dómi. Samtökin stefndu Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings Lúxembourg, Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings og Ólafi Ólafssyni, einum stærsta hluthafa hins fallna banka. Að auki var Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi bankastjóra bankans, stefnt. Stefna samtakanna byggir á þeim grundvelli að Kaupþingsmenn séu skaðabótaskyldir vegna þeirrar markaðsmisnotkunar sem þeir hafa verið dæmdir fyrir. Samtökin fara fram á 902 milljónir í skaðabætur. Stefndu byggðu frávísunarkröfu sína á því að málið hefði verið háð í röngu varnarþingi. Enginn þeirra eigi lögheimili í þinghá Héraðsdóms Vesturlands. Þeir hefðu dvalarstað í fangelsinu að Kvíjabryggju en ekki fasta búsetu. Einnig var byggt á því að stefnan hefði verið birt röngum aðila en hún var birt fangaverði. Sá gæti ekki haft fasta búsetu í fangelsinu og því ekki haldið heimili með stefndu. Dómari málsins taldi ekki að dvöl í fangelsinu teldist ígildi fastrar búsetu. Í lögum um meðferð einkamála segir að sækja megi mann, búsettan erlendis, í þeirri þinghá sem hann er staddur við birtingu stefnu ef mál hans varðar fjárskyldu við mann búsettan hér á landi eða félag, stofnun eða samtök með varnarþing hér. Samtök sparifjáreigenda byggðu á þeim grundvelli fyrir dómi. Ekki var fallist á þá málsástæðu þar sem stefnan var eigi birt stefndu. Úrskurð héraðsdóms má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira