St. Jósefsspítali: Fjármálaráðuneyti til í viðræður við Hafnarfjarðarbæ Atli Ísleifsson skrifar 20. janúar 2016 11:14 Fyrr í vikunni gerði bæjarstjórn Hafnarfjarðar það að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala. Vísir/Pjetur
Fjármálaráðuneytið er reiðubúið að hefja við fyrsta tækifæri viðræður við Hafnarfjarðarbæ um kaup sveitarfélagsins á eignarhlut ríkissjóðs í fasteignum St. Jósefsspítala. Ráðuneytið segist fagna breyttri afstöðu Hafnarfjarðarbæjar um að sveitarfélagið óski eftir að kaupa eignarhlut ríkisins. Fyrr í vikunni gerði bæjarstjórn Hafnarfjarðar það að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala. Í frétt á vef ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hafi í fyrri samskiptum við sveitarfélagið lýst því að það væri reiðbúið að hefja viðræður um kaup við sameiganda sinn að eignunum. Hafnarfjarðarbær hafi þó fram að þessu ekki lýst yfir áhuga á slíkum viðræðum. „Eignirnar voru síðast auglýstar til sölu um mitt árið 2014 í samstarfi við sveitarfélagið. Vegna skilyrða um heilbrigðistengda starfsemi í söluauglýsingu bárust örfá tilboð sem voru jafnframt langt frá fyrirliggjandi verðmati og af þeim sökum var öllum þeim tilboðum hafnað. Hafnarfjarðarbær hefur hins vegar um nokkurt skeið ekki fallist á að eignirnar yrðu auglýstar aftur til sölu með almennum hætti. Í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um væntanlega sölu eignanna hafa fjölmargar fyrirspurnir borist um eignirnar sem benda sterklega til þess að mikill áhugi sé fyrir þeim á hinum almenna markaði. Þá hafa einnig nokkur áhugaverð tilboð borist í eignirnar þótt þær hafi ekki verið í formlegu söluferli í nokkurn tíma. Ljóst virðist að vilji er fyrir því að hefja aftur starfsemi í umræddum fasteignum í þágu nærsamfélagsins. Það eru sameiginlegir hagsmunir ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar að koma eignunum sem fyrst í notkun enda óviðunandi að húsnæðið standi autt um lengri tíma. Frekari dráttur málsins leiðir til aukins kostnaðar, einkum fyrir ríkið sem hefur borið allan rekstrarkostnað húsnæðisins frá því að starfsemi lagðist af í eignunum, og seinkar því að eignirnar verði gerðar upp og nýttar að nýju. Ráðuneytið fagnar breyttri afstöðu Hafnarfjarðarbæjar þar sem fram kemur að sveitarfélagið óski eftir að kaupa eignarhlut ríkissjóðs í fasteignum St. Jósefsspítala og er reiðubúið að hefja viðræður við sveitarfélagið við fyrsta tækifæri. Ljóst er að allar slíkar viðræður munu þurfa að byggja á sannvirði eignanna eins og almennt gildir um ráðstöfun eigna ríkisins,“ segir í fréttinni.
Tengdar fréttir Hafnarfjarðarbær vill kaupa St. Jósefsspítala Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala. 18. janúar 2016 16:45 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Hafnarfjarðarbær vill kaupa St. Jósefsspítala Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala. 18. janúar 2016 16:45