Af stríðsástandinu í miðborginni Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar 1. maí 2015 07:00 Kæri Hjálmar Sveinsson. Nokkrir mánuðir eru nú liðnir síðan ég skrifaði þér síðast og bauð þér í rúnt um Reykjavík svo þú gætir séð og kynnst ófremdarástandinu í umferðarmálum í borginni. Þú komst með og það var fínt en ekkert hefur frést af því hvort og þá hvernig þið hjá borginni ætlið að bregðast við því ófremdarástandi sem er í umferðarmálum borgarinnar hvað ferðaþjónustuna varðar. Mig langar því til að hnykkja á nokkrum atriðum. Ferðamenn lenda á öllum tímum sólarhringsins og koma um miðja nótt eða snemma morguns á hótel í Reykjavík. Það er sem stríðsástand sé í miðborginni á nóttunni og morgnana um helgar á sumrin þegar háannatími er í ferðaþjónustunni. Ferðamönnum dauðbregður að sjá dauðadrukkna Íslendinga valsandi um göturnar hrópandi og kallandi, jafnvel ryskingar og ofbeldi. Auðvitað hrýs þeim hugur við að taka ferðatöskurnar sínar og ösla glerbrotin upp í ökkla með áfengisfnykinn og hlandlyktina í nösunum. Það er nefnilega ekkert venjulegt rusl sem þekur götur og stéttar. Og það virðist ekkert þrifið fyrr en með morgninum eftir að ferðamennirnir eru lagðir af stað í ferðirnar sínar. Okkur mörgum sem vinnum í ferðaþjónustunni líst ekkert á að senda ferðamennina út á göturnar með ferðatöskurnar sínar í eftirdragi við þessar aðstæður fyrir nú utan hvað það er leiðinlegt að ferðamennirnir sjái höfuðborgina svona enda súpa þeir margir hveljur þegar þeir sjá ástandið. Kollegar mínir hafa sumir lagt og lokað bílunum sínum og veitt ferðamönnunum fylgd á hótelið þó að það sé alls ekki í þeirra verkahring en hvað gerir maður ekki fyrir öryggið þegar skelkað fólk er annars vegar. Veðrið á Íslandi getur verið vont. Í vetur liðu varla þrír sólarhringar milli snjóstorma. Oft var ófærð á götum, bæði í borginni og úti á landi. Enginn veit hvernig næsti vetur verður. Íslendingar sjálfir, hvort sem þeir búa í miðborginni eða úthverfunum, draga ekki ferðatöskur á eftir sér hálfan, einn, tvo eða fleiri kílómetra í slabbi, stormi, stórhríð eða beljandi rigningu til að komast í rútu á alþjóða- eða innanlandsflugvöllinn. Af hverju að ætlast til þess af erlendum ferðamönnum? Ferðamennirnir okkar eru í fríi. Þeir eru að heiðra okkur með heimsókn sinni. Þeir koma til landsins forvitnir að kynnast menningu okkar og náttúru. Þeir eru að hjálpa Íslandi að rísa upp úr rústum hrunsins og eyða miklum peningum til að njóta verunnar hér. Þess vegna eiga þeir rétt á því að geta keypt sér far á flugvöll eða til baka með smárútum. Ekkert er hins vegar gert til að auðvelda þessa þjónustu og frekar reynt að auka skipulagsleysið og hamla því að hún sé veitt ef eitthvað er.Gæti skilað borginni tekjum Gistihúsum og hótelum hefur verið dritað út um alla borg, sérstaklega miðborgina, alltaf án þess að nokkurt tillit sé tekið til samgönguþjónustu við ferðamennina. Það er gríðarlegt vandamál og til skammar að ekki séu stæði fyrir rútur í grennd við gististaði. Ég legg því til að borgin skyldi alla gististaði til að leigja átta metra rútustæði við alla gististaði allt árið þannig að rútur geti sótt gesti þangað eða skilað þeim. Þannig væri því stýrt hvar rútur, litlar sem stórar, mega stoppa til að taka fólk eða skila af sér. Þessi leiga gæti skilað borginni ágætis tekjum á ársgrundvelli og þessar tekjur mætti nota til að bæta og laga gatnakerfið og koma upp rútustæðum á helstu umferðaræðum eins og við Hverfisgötuna þar sem bráðvantar að koma upp nokkrum rútustæðum. Þá legg ég til að borgin taki öll bílastæðin sunnan megin við Hallgrímskirkju undir rútustæði því að þangað fara ferðamenn og skila kirkjunni háum tekjum. Ég vona Hjálmar að þú hafir lesið þessa grein og skiljir hvað ég er að fara. Landsmenn allir – rétt eins og starfsmenn ferðaþjónustunnar – eiga rétt á því að vita hvað er að gerast í höfuðborginni. Þess vegna óska ég eftir svörum um það hver stefnan sé varðandi stæðamál við gististaði, hvaða ákvarðanir hafi verið teknar eða stefnt sé að því að taka til við að bæta úr vandanum og hvernig framtíðarsýnin sé varðandi stæðamál í miðborginni og við gististaði. Einnig óska ég eftir upplýsingum um þær úttektir og eða greinargerðir sem þið byggið stefnumótun ykkar og ákvarðanir á. Það skiptir nefnilega máli að vita hvert maður stefnir og hvers vegna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun