Akureyrarbær óskar eftir að taka á móti flóttamönnum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. ágúst 2015 19:06 Akureyrarbær hefur áður tekið á móti innflytjendum. Vísir/Petur Sigurðsson
Akureyrarbær hefur í hyggju að að taka á móti hluta af þeim 50 flóttamönnum sem íslensk stjórnvöld hafa lýst yfir að tekið verði á móti á þessu og næsta ári. Velferðarráðherra hefur lýst yfir ánægju með þetta frumkvæði Akureyrarbæjar. „Fullur vilji er hjá Akureyrarbæ að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og greiða fyrir því að flóttamönnum verði sköpuð ný tækifæri og góð lífsskilyrði,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ sem birtist á vefsíðu sveitarfélagsins. Akureyrarbær hefur áður tekið á móti flóttamönnum en árið 2003 komu 23 flóttamenn frá ríkjum fyrrum Júgóslavíu og búa allar fjölskyldurnar ennþá á Akureyri. Samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var á vegum Háskólans á Akureyri kemur fram að innflytjendum á Akureyri líði mjög vel og að stuðningur við þá sé góður. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra fagnar frumvæði Akureyringa og telur sveitarfélagið þegar hafa sýnt að það sé vel í stakk búið til að sinna slíku verkefni með sóma.
Flóttamenn Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira