Kveikjur sem innhalda ögrandi viðfangsefni Gunnar Leó Pálsson skrifar 18. ágúst 2015 10:00 Séra Bolli Pétur Bollason nýtir reynslu sína í starfi og lífi við smíði bókarinnar sem kallast Kveikjur. mynd/Svavar Alfreð Jónsson „
Aðalkveikjan að þessari bók er fyrst og fremst löngun mín til þess að bjóða upp á stuttar textamyndir, siðferðissögur úr samtímanum, sem fela í sér spurningar og vangaveltur er hafa ekki verið mjög áberandi í umræðunni,“ segir séra Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufásprestakalli. Hann sendi frá sér bókina Kveikjur fyrir skömmu. Um er að ræða fjörutíu frumsamdar kveikjur, frásagnir með dæmisagnablæ. Þar má finna umfjöllun um fátækt, einelti, líffæragjafir, fóstureyðingar, fordóma, ofbeldi, trúnaðarbrot, náungaábyrgð, sorg, einmanaleika, samtal kynslóða, andríkar hugmyndir, náttúruvernd, trú, von, kærleika, tímann og endalokin. „Þessar stuttu sögur nefnast einu orði Kveikjur vegna þess að þeim er ætlað að kveikja frekari hugmyndir og umræður um siðferðisleg álitamál, þjóðfélagsmein, lífsins tilgang, Guð. Kveikjurnar innihalda ögrandi viðfangsefni sem skilja eftir margvíslega þanka og því gott og mikilvægt að fullorðnir ræði þær við ungmenni,“ segir Bolli Pétur.Bókin KveikjurKveikjurnar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar en Bolli Pétur nýtir reynslu sína úr starfi sem úr leik við kveikjusmíðina. „Þetta er skáldskapur en reynsla mín kemur vissulega þarna fram í ýmsum myndum.“ Bolli Pétur var eitt ár að vinna bókina sem gefin er út af Bókaútgáfunni Hólum ehf. Ljósmynd eftir Völund Jónsson blaðaljósmyndara prýðir hverja sögu og þar er um gott verkefni fyrir lesandann að ræða, þ.e. að tengja saman kveikju og mynd í huga sem í samræðu. Í lok hverrar kveikju eru svo tvær spurningar sem geta komið hugflæði og samtali af stað, svokallaðir ísbrjótar. „Ég vil skapa umræðugrundvöll um kveikjurnar. Kennarar hafa m.a. sýnt bókinni áhuga og er vilji fyrir því að hún sé kennd og nýtt í lífsleiknifræðslu, ég hef trú á þessu efni í slíka fræðslu,“ segir Bolli. „Það er ljóst að margar þessara kveikna eru krefjandi,innihalda viðkvæm efnistök, og svo eru þarna kveikjur sem strjúka jafnframt á vanga og vekja vonir, bjartsýni og trú. Þær kalla á samtal og ekki hvað síst við yngra fólk en bókin höfðar engu að síður til allra aldurshópa, og ég legg áherslu á að þarna sé um kjörið efni fyrir unga og aldna til að ræða sín á milli,“ útskýrir Bolli Pétur. Bolli hefur fengið jákvæð viðbrögð og umsagnir m.a. frá Gerði Kristnýju rithöfundi og Gunnlaugi A. Jónssyni guðfræðiprófessor og ýmsir aðrir segja bókina eiga fullt erindi og þjóna vel sínum tilgangi.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Lífið Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira