Vilja endurskoða staðsetningu rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar Stefán Árni Pálsson skrifar 21. apríl 2015 11:19 Rétttrúnaðarkirkjan á Mýrargötu.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu sem snýr að því því að endurskoða staðsetningu rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Þar segir að til að ná sátt um kirkjubyggingu á Nýlendureit, feli borgarstjórn umhverfis- og skipulagssviði að hefja formlegar samningaviðræður við aðstandendur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar um að velja fyrirhugaðri kirkjubyggingu hennar nýjan og betri stað á horni Mýrargötu og Seljavegar í stað núverandi byggingarreits að Mýrargötu 21. Samráð verði haft við íbúa hverfisins við vinnslu málsins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja að markmið tillögunnar sé að ná sátt um fyrirhugaða kirkjubyggingu meðal íbúa nærliggjandi hverfis en hjá þeim hafi ítrekað komið fram að hún sé í ósamræmi við nærliggjandi byggð við Nýlendugötu hvað varðar stærð, hæð og arkitektúr.Sjá einnig: Mótmæla rétttrúnaðarkirkju á Mýrargötu „Samkvæmt tillögunni verður sjálft kirkjuskipið tólf metrar á hæð. Á byggingunni eiga að vera þrír turnar, tveir sem mega fara upp í allt að sautján metra hæð og aðalturn má vera 22 metrar að hæð að krossi undanskildum. Aðeins er gert ráð fyrir þremur bílastæðum og er ljóst að þau munu hvergi nærri duga fyrir þá starfsemi, sem fara mun fram í kirkjunni,“ segir í tillögunni. Margt bendi til þess að verið sé að koma of stórri byggingu fyrir á of þröngri lóð og sé því rétt að taka tillit til sjónarmiða íbúa. „Líklegt er að kirkjubyggingin njóti sín mun betur á horni Mýrargötu og Seljavegar og fari betur í umhverfinu þar heldur en á þröngri lóð við Mýrargötu. Horn Mýrargötu og Seljavegar hentar mun betur fyrir fjölsótta kirkjubyggingu með tilliti til aðkomu og lagningar bifreiða en fyrirhuguð lóð milli Mýrargötu. Þá verður minna rask í Nýlendugötu vegna umferðar að kirkjunni. Nokkur almenn bílastæði eru við Héðinshús og væri hægt að samnýta þau með kirkjunni. Vestur af Héðinshúsi er síðan fjöldi bílastæða sem henta myndi til slíkrar samnýtingar. Torgið við Seljaveg gæti nýst kirkjunni og safnaðarheimilinu.“
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira