Öryggi sjúklinga í sjálfsvígshættu tryggt Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. maí 2015 12:00 Hjúkrunarfræðingar á Bráðamóttöku Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir, Kristín Rósa Ármannsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir. Vísir/GVA
Hjúkrunarfræðingarnir Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir, Kristín Rósa Ármannsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir ásamt Önnu Maríu Þórðardóttur, sérfræðingi í hjúkrun, unnu nýtt verklag varðandi móttöku á fólki í sjálfsvígshugleiðingum eða eftir sjálfsvígstilraun. Verkferlið verður kynnt formlega í dag á hinni árlegu Viku hjúkrunar á Landspítalanum. „Þessi sjúklingahópur, sem kemur inn eftir sjálfsvígstilraun eða með andlega vanlíðan, er mjög stór á Bráðamóttökunni. Bráðamóttaka geðdeildar er ekki opin á kvöldin og um helgar þannig að þessir sjúklingar þurfa að bíða á á deildinni okkar þar til geðlæknir getur metið þá. Það er því mikilvægt að móttakan sé góð og að fyrstu viðbrögð séu rétt,“ segir Hrönn Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur. Nýtt verklag er nú í notkun og hefur að sögn Hrannar reynst vel. Hún segir að með nýju skipulögðu verklagi hafi einfaldlega orðið meiri vitund fyrir því hvernig ætti að nálgast einstaklinga í sjálfsvígshættu. „Tilgangurinn er að bæta móttökuna og tryggja öryggi sjúklinga. Nýjar verklagsreglur leggja áherslu á að hjúkrunarfræðingur meti sjálfsvígshættu sjúklings í samtali með ákveðinn spurningalista til hliðsjónar. Ef einstaklingur er með virkar sjálfsvígshugsanir fer ákveðinn verkferill af stað með frekara eftirliti til að efla öryggi.“ Kynning á móttökunni er liður í Viku hjúkrunar sem fræðslunefnd hjúkrunarráðs stendur fyrir á hverju ári í maí – í kringum alþjóðadag hjúkrunarfræðinga sem var í gær, á afmælisdegi frumkvöðulsins Florence Nightingale. Að þessu sinni er þemað umbætur í hjúkrun. Þá er vísað til verkefna og breytinga sem hafa verið gerðar til að viðhalda öryggi sjúklinga og bæta þjónustu. Í boði verða fjölmargir fyrirlestrar og vinnusmiðjur sem öllum er velkomið að taka þátt í.Nýtt verklag á bráðamóttökunni verður kynnt kl. 11 við Hringdal á Landspítalanum við Hringbraut og kl. 13 á 2. hæð í Fossvogi.
Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Sjá meira