Þrír sigrar í röð hjá stelpunum hans Þóris | Úrslitin á HM kvenna í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2015 22:51 Nora Mörk lék vel í kvöld. Vísir/Getty
Norska kvennalandsliðið hélt sigurgöngu sinni áfram á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í kvöld þegar liðið vann fjögurra marka sigur á Rúmeníu. Norsku stelpurnar, sem spila undir stjórn Íslendingsins Þóris Hergeirssonar, töpuðu með einu marki á móti Rússlandi í fyrsta leik mótsins en hafa síðan unnið þrjá leiki í röð. Nora Mörk skoraði sjö mörk úr tíu skotum og var markahæst í norska liðinu en Veronika Kristiansen skoraði sex mörk og Stine Oftedal var með fimm mörk. Norska liðið komst í 7-2 í upphafi leiks og var 13-10 yfir í hálfleik. Norsku stelpurnar byrjuðu seinni hálfleikinn líka mjög vel og voru átta mörkum yfir, 20-12, þegar 18 mínútur voru eftir. Rúmenska liðið skoraði fjögur mörk í röð og minnkaði muninn í 23-19 þegar sex mínútur voru eftir og minnstur var munurinn þrjú mörk á lokakaflanum. Sigur norska liðsins var þó aldrei í mikilli hættu. Rússland og Spánn eru bæði fyrir ofan norska liðið eftir stórsigra í sínum leikjum og hafa Rússar þegar tryggt sér sigur í riðlinum. Noregur og Spánn eru komin áfram í sextán liða úrslitin en spila úrslitaleik um annað sætið á morgun. Frakkland og Brasilía eru efst og jöfn með sjö stig í C-riðli en þau spila hreinan úrslitaleik um sigurinn í riðlinum í lokaumferðinni. Þýsku stelpurnar eru komnar upp í þriðja sæti riðilsins eftir sigur á Suður Kóreu í dag.Úrslit á HM kvenna í handbolta í dag:C-riðill Argentína - Brasilía 19-23 Frakkland - Kongó 29-16 Þýskaland - Suður Kórea 40-28Stig liða Frakkland 7 Brasilía 7 Þýskaland 4 Suður Kórea 4 Argentína 2 Kongó 0D-riðill Kasakstan - Rússland 19-42 Spánn - Púertó Ríkó 39-13 Rúmenía - Noregur 22-26Stig liða Rússland 8 Spánn 6 Noregur 6 Rúmenía 4 Kasakstan 0 Púertó Ríkó 0
Handbolti Mest lesið KR - Stjarnan | Geta Vesturbæingar jafnað metin? Körfubolti Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 84-86 | Allt jafnt eftir ótrúlega dramatík Körfubolti Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Íslenski boltinn „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda Handbolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti Sjö leikmenn flúðu eftir fyrsta landsleikinn í átta ár Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Stjarnan svaraði fyrir sig og knúði fram oddaleik Elín Klara skoraði þrjú mörk og Sävehof er komið yfir Íslendingaliðin undir í einvígum sínum Skór Rúnars upp í hillu Eduard Koksharov fallinn frá Markahæsti leikmaður HK til Fram Sjá meira