Lífið

Kim Kardashian tók "selfie" með Hillary Clinton

Kim gaf út bók sem innihélt aðeins sjálfur.
Kim gaf út bók sem innihélt aðeins sjálfur.
Kim Kardashian mætti ásamt Kanye West, eiginmanni sínum, á söfnunarkvöld fyrir forsetaframboð Hillary Clinton í Los Angeles.

Kim var í góðu stuði og á leiðinni á samkomuna deildi hún sjálfu úr bílnum þar sem hún sagði markmið kvöldsins vera að taka eina slíka með forsetaframbjóðandanum sjálfum.

Það var ekki langt liðið á kvöldið þegar mynd birtist á samfélagsmiðlum af Kim, Hillary og Kanye. Kim var skiljanlega í skýjunum með myndina enda telur hún Hillary verða næsta forseta Bandaríkjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×