Kosningar um aðildina að ESB guðsteinn bjarnason skrifar 28. maí 2015 08:00 Drottningin les, Filippus hlustar David Cameron forsætisráðherra þurfti að láta sér lynda að standa afast í salnum meðan Elísabet Bretadrottning las upp stefnuræðu hinnar nýju ríkisstjórnar hans. vísir/afp
Bretland Elísabet Bretadrottning flutti í gær hina árlegu stefnuræðu bresku stjórnarinnar. Þar komu fram helstu stefnumál hinnar nýju ríkisstjórnar Íhaldsflokksins, sem náði hreinum þingmeirihluta í kosningunum í síðasta mánuði. David Cameron forsætisráðherra hyggst efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Bretlands að Evrópusambandinu fyrir árslok 2017. Lög um þetta verða kynnt fljótlega, segir í stefnuræðunni, og talið er að það muni gerast strax í dag. Jafnframt hyggst Cameron hefja viðræður við Evrópusambandið um breytingar á aðildarskilmálum Bretlands, ásamt því að þrýsta á um að gerðar verði umbætur á Evrópusambandinu. Strax í næsta mánuði ætlar Cameron að ræða við leiðtoga allra Evrópusambandsríkjanna til að kynna þeim hugmyndir sínar, og vonast til þess að geta borið hinn breytta aðildarsamning undir bresku þjóðina. Hann hefur áður sagst vona að samningurinn verði það góður að Bretar geti samþykkt hann. Fjölmörg önnur stefnumál stjórnarinnar voru kynnt í ræðunni, þar á meðal áform um að veita Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi aukin völd. Þar má búast við að Skoski þjóðarflokkurinn, sem vann gríðarmikinn sigur í þingkosningunum, geri kröfur um mun meiri breytingar en að hefur verið stefnt. Eitt kosningaloforða Camerons fær ekki mikið vægi í ræðunni, en það eru áform íhaldsmanna um að ógilda bresku mannréttindalögin. Á hinn bóginn eru boðaðar breytingar á fjarskiptalögum sem að öllum líkindum eiga að snúast um auknar heimildir leyniþjónustunnar til að fylgjast með farsímanotkun og jafnvel netsamskiptum fólks. Samkvæmt fornri venju er það drottningin sem les upp stefnuræðu stjórnarinnar ár hvert, jafnan að vori til þegar þingárið hefst. Uppistaðan í ræðunni er venju samkvæmt listi yfir þau frumvörp sem stjórnin hyggst leggja fram næsta árið, þangað til þingi er slitið. Ýmsar serimóníur fylgja jafnan þessum ræðuflutningi drottningarinnar. Þannig er þess vandlega gætt að fulltrúar í neðri málstofu þingsins komi síðastir allra inn í þingsal lávarðadeildarinnar og þurfa þeir að standa aftast í salnum, aftan við lávarðana og aðra tignargesti drottningar.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Fleiri fréttir Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Sjá meira