Hugmyndin sem tók óvænt á loft og allir eru að tala um Guðrún Ansnes skrifar 20. maí 2015 09:30 Samrýndur hópur sem eiginlega verður að láta verða af þessu, þar sem augljós áhugi er til staðar og fyrirspurnum linnir ekki. Vísir/GVA „
Það er nokkuð ljóst að eftirspurnin er til staðar, við höfum ekki einu sinni skilað lokaskýrslunni en allir vita hvað þetta er,“ segir Heiður Rán, ein þeirra sem vinna að barnapössun.is sem fór á flug í byrjun vikunnar. „Þessi viðbrögð eru ekkert í líkingu við það sem við höfðum gert okkur í hugarlund, og koma okkur vissulega í opna skjöldu, en skerpa enn frekar á að þörfin er greinilega til staðar.“ Um ræðir verkefni hóps á þverfaglegu námskeiði á vegum Háskólans í Reykjavík og standa auk Heiðar þau Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir, Halldóra Gunnarsdóttir, Hannes Þór Arnarsson, Helen Rut Ástþórsdóttir og Helga Guðmundsdóttir á bak við verkefnið. Heiður segist hafa fengið hugmyndina, en hún sé tveggja barna móðir sem finnur virkilega fyrir þörfinni á barnfóstrukerfi hér á land. „Það er ekkert grín að vera útivinnandi með börn, þar sem foreldrar fá sjö daga á ári, óháð fjölda barna, í veikindadaga. Þá á eftir að gera ráð fyrir vetrarfríunum, starfsdögunum og öllu þessu sem bætist við,“ segir Heiður og bætir við að oftar en ekki fari frítími foreldra og barna forgörðum þar sem foreldrar neyðist oft til að nýta sumarfrísdaga til að vera heima með börnunum eftir að þessum sjö dögum er lokið. „Þær lausnir sem í boði eru í dag eru aðallega barnapíur á bland.is og Fésbókarhópar. Það er ekki sérlega traustvekjandi, finnst okkur,“ segir Heiður og bendir á að hún hafi þó nokkuð oft rekið augun í auglýsingar í svona hópum þar sem myndir af börnum eru settar inn og óskað eftir pössun fyrir þau. Að auki sé ólöglegt fyrir einstaklinga undir 15 ára að auglýsa barnapössun á þessum miðlum, sem þó hefur tíðkast í mörg ár. „Við viljum koma á fót kerfi sem byggir á öryggi og eftirliti, þar sem endurgjöf er mikilvægur partur. Þannig sé hægt að vera með aðhald og sigta úr rotin epli,“ segir hún. Greinilegt er að eftirspurnin er gríðarleg, en síminn hefur ekki stoppað síðan hópurinn stofnaði Fésbókarsíðuna „Þetta er svolítið skrítið, allt í einu eru allir að tala um þetta. Nú vonum við bara að þetta hafi í för með sér einhverja fjárfesta og svoleiðis svo við getum látið verða af þessu, því þörfin er greinilega til staðar,“ útskýrir Heiður.
Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Fleiri fréttir 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Sjá meira