Bruninn mikli 1915 Jón Viðar Matthíasson skrifar 22. apríl 2015 09:30 Öld er liðin frá einum mesta eldsvoða á Íslandi, brunanum mikla í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt 25. apríl 1915. Tveir menn létu lífið, tólf hús stóðu í ljósum logum og flest þeirra brunnu til grunna. Eldsvoðinn hafði mikil áhrif á bæjarbúa á sínum tíma, sem og á skipulagsmál bæjarins, þróun brunavarna og aðbúnað slökkviliðsins. Reykjavíkurborg og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins munu minnast brunans mikla með sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 24.–28. apríl og viðburðum við Austurvöll laugardaginn 25. apríl. Eldurinn kviknaði á Hótel Reykjavík, stóru og glæsilegu timburhúsi við Austurstræti 12. Kvöldið fyrir brunann var haldið brúðkaup Jósephinu Zoëga og Clifford Hobbs á Hótel Reykjavík. Mikið var um dýrðir og stóð veislan fram á nótt. Síðustu gestir voru að halda til síns heima þegar eldsins varð vart, en hann breiddist hratt út og barst fljótlega í næstu hús. Alls kviknaði í átta húsum við Austurstræti og fjórum við Hafnarstræti, auk skúra. Minnstur varð skaðinn í pósthúsinu. Ingólfshvoll í Hafnarstræti 14 brann að hluta og veggir og gólf Landsbankahússins stóðu eftir. Önnur hús voru rústir einar innan fárra klukkustunda. Um 14.000 manns bjuggu í Reykjavík og var áfallið því mikið þegar svo mörg hús í hjarta bæjarins hurfu, heimili og vinnustaðir fjölda fólks. Mennirnir sem létu lífið voru Runólfur Steingrímsson, vinnumaður á Hótel Reykjavík, sem hafði gengið snemma til náða á hótelinu, og Guðjón Sigurðsson, eigandi Ingólfshvols, sem lést úr reykeitrun í húsi sínu.Tveir menn fórust í brunanum mikla sem breiddist út frá Hótel Reykjavík við Austurstæti.MYND/MAGNÚS óLAFSSONÝmsar úrbætur urðu í brunamálum bæjarins fyrir brunann mikla. Vatnsveita var tekin í gagnið 1909, brunasími var lagður um bæinn 1911 og ný slökkvistöð var tekin í notkun 1912. Ný reglugerð um brunamál var samþykkt fyrir Reykjavík árið 1913. Þá voru tveir starfandi varðmenn í hinni nýju slökkvistöð við Tjarnargötu og 36 fastir slökkviliðsmenn í útkallsliði, sem hringt var út með brunasíma eftir þörfum. Varaliðið, sem í voru allir verkfærir karlar í bænum aðrir en embættismenn, var kallað út með lúðrum. Mörgu var þó ábótavant þegar stóra kallið kom. Búnaður slökkviliðsins var fábreyttur. Slöngur höfðu margar sprungið af því að þorna upprúllaðar um veturinn og frost hafði skemmt nokkra brunahana í miðbænum. Allt var unnið með handafli, hvort sem það snerist um að draga níðþunga slönguvagna á eldstað eða knýja vatnsdælurnar. Öflug véldæla í eigu einkaaðila var tekin traustataki og notuð við slökkvistörfin. Megináhersla varð fljótlega að reyna að hefta útbreiðslu eldsins til austurs og vesturs og tókst það að lokum. Við brunann mikla varð ljóst að Slökkvilið Reykjavíkur yrði að vera betur tækjum búið til að takast á við eldsvoða af þvílíkri stærðargráðu. Bærinn keypti véldæluna sem notuð hafði verið við slökkvistörf í brunanum, nýjan sjálfheldustiga og fljótlega aðra véldælu. Turn var byggður við stöðina til að þurrka slöngur. Árið 1920 voru fyrstu þrír slökkvibílarnir keyptir og fyrsti sjúkrabíllinn var tekinn í notkun ári síðar. Varðmönnum á slökkvistöðinni í Tjarnargötu fjölgaði í sjö á næstu árum og áhersla var lögð á kunnáttu í meðferð véla og bifreiða. Timburhúsum í Reykjavík voru settar þröngar skorður í kjölfar brunans, bæði varðandi stærð og fjarlægðir milli húsa. Það varð til þess að steinsteypan tók yfir sem helsta byggingarefnið. Bruninn varð líka til þess að flýta fyrir stofnun Rafmagnsveitu Reykjavíkur til að leysa gasið af hólmi og byggingu vatnsgeymis á Rauðarárholtinu. Það má segja að við þennan atburð hafi bærinn byrjað að breytast í borg. Reykjavík var komin í hóp stórborga sem höfðu upplifað stórbruna. Ásýnd bæjarins breyttist þegar steinsteypt stórhýsi risu í stað timburhúsanna sem prýtt höfðu helstu viðskipta- og verslunargötur bæjarins, eflaust ýmsum til ama bæði þá og síðar. En um leið var betur hugað að öryggi íbúanna og eigna þeirra með bættum brunavörnum og aukinni meðvitund um nauðsyn þeirra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun