Svona eru þær hamingjusamar og hættu nú að dæma þær Guðrún Ansnes skrifar 16. apríl 2015 11:30 Slitfögur á Instagram. Chrissy Teigen smellti þessari mynd inn á dögunum og hlaut mikið lof fylgjenda.
Stjörnurnar eru víst mannlegar eins og við hin, þó svo að stundum virðist það fjarstæðukennt. Þær sem ekki uppfylla staðlaðar útlitskröfur verða iðulega fyrir barðinu á vökulu auga gagnrýnandi fjölmiðla og jafnvel almennings á samfélagsmiðlum. Nú virðast þær stíga fram hver á fætur annarri og hafna þessum fyrirframgefnu hugmyndum um hvernig farsæld sýni sig og svara gagnrýnisröddum hástöfum. Pink, Kelly Clarkson og Chrissy Teigen eru örfá dæmi um þekkta einstaklinga sem stíga frækilega fram og bjóða gagnrýnisröddunum birginn. Þær nýta fræðgarðsólina til góðs enda fullkominn vettvangur til að koma skilaboðum áleiðis til gríðalega stórs hóps. Viðbrögð fylgjenda stjarnanna á Twitter og Instagram hafa ekki látið á sér standa og eru einhver besti vitnisburður um að þörfin fyrir byltingu í þessum málum er vissulega til staðar, en þakklætinu rignir bókstaflega yfir stöllurnar í kjölfarið.Prúðbúin Pink ásamt dóttur hennar, en þeirri stuttu þótti mamman stórkostlega fín og mjúki maginn ekki annað en frábær.Pink þótti helst til búttuð á samkomu til styrktar krabbameinssjúkum í þessum kjól. Blessunarlega er hún með munninn fyrir neðan nefið og bað trylltan lýðinn vinsamlegast um að hafa ekki áhyggjur af henni og holdafarinu. Henni liði sem blóma í eggi. Hún benti því til stuðnings á að dóttir hennar hefði spurt hana um daginn hvers vegna maginn á henni væri svona mjúkur, og svaraði hún til að hann væri einfaldlega hamingjusamur. Aðdáendur stjörnunnar hafa kappkostað að þakka henni fyrir að vera slík fyrirmynd sem raun ber vitni.Kelly Clarkson hefur ítrekað verið gagnrýnd fyrir að vera of feit og nýlega af þáttarstjórnandanum Chris Wallace hjá Fox News, sem stakk upp á að hún tæki því rólega í pönnupitsunum. Þetta kaus hann að láta út úr sér eftir að hún steig á svið eftir fæðingarorlof. Hún lét hann heldur betur heyra það, þó ekki sín vegna. Heldur vegna allra hinna óhörðnuðu stúlkna þarna úti sem litu svipað út og hún. Sundfatamódelið og eiginkona söngvarans John Legent þykir hressilega hispurslaus á samfélagsmiðlunum. Hún á yfir tvær milljónir fylgjenda á Instagram og nýtti sér vinsældirnar í vikunni til að koma slitförum sínu á lærunum í sviðsljósið. Hún sagði þau biðja að heilsa aðdáendendum. Þykir þetta sæta tíðindum í heimi filtera og myndvinnsluforrita. Hafa viðbrögð fylgjenda hennar ekki látið á sér standa og hrúguðust strax inn athugasemdir frá konum á öllum aldri sem samsömuðu sig henni og þökkuðu hugrekkið.
Tengdar fréttir Fimm ára með áhyggjur af líkamsmynd sinni Börn þurfa að öðlast virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsvaxtar, segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur. Ekkert bendi til að jákvætt viðhorf til líkamans stuðli að óheilbrigði, hvorki meðal grannra né feitra. 4. september 2014 00:01 Pissað í sturtu Hefur þú pissað í sturtu? Ekki? Það er lífsins nauðsyn að þú lesir áfram. 6. janúar 2015 14:00 Pink svarar nettröllum fullum hálsi: „Ég hef engar áhyggjur af mér“ Söngkonan er þekkt fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið. 14. apríl 2015 11:30 Útrýma fitufordómum í fjölmiðlum 14. mars 2015 12:00 Mest lesið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira
Fimm ára með áhyggjur af líkamsmynd sinni Börn þurfa að öðlast virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsvaxtar, segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur. Ekkert bendi til að jákvætt viðhorf til líkamans stuðli að óheilbrigði, hvorki meðal grannra né feitra. 4. september 2014 00:01
Pissað í sturtu Hefur þú pissað í sturtu? Ekki? Það er lífsins nauðsyn að þú lesir áfram. 6. janúar 2015 14:00
Pink svarar nettröllum fullum hálsi: „Ég hef engar áhyggjur af mér“ Söngkonan er þekkt fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið. 14. apríl 2015 11:30