Skoðun

Gjöf í Rótarýsjóðinn er góð gjöf

Birna Bjarnadóttir skrifar
Tæplega tólf hundruð félagar bæði konur og karlar eru í Rótarýhreyfingunni á Íslandi í um 30 klúbbum um allt land. Þessi hópur hefur nú ákveðið að vekja athygli á starfi hreyfingarinnar með virkri kynningu í fjölmiðlum og á mannamótum. Samkvæmt könnunum hafa 40% aðspurðra aldrei heyrt minnst á Rótarý og aðeins 20% þekkja eitthvað til Rótarý en geta ekki sagt hvað það er annað en að félagarnir hittast einu sinni í viku til að borða saman. En Rótarý er svo miklu meira en matur, fundahöld og fræðsluerindi.

Rótarýsjóðurinn er kjarninn í starfi Rótarý. Rótarýsjóðurinn er byggður upp með framlögum Rótarýfélaga, einstaklinga, sjóða og fyrirtækja. Hann er einn stærsti sjóður í heiminum í eigu félagasamtaka sem leggur áherslu á að láta gott af sér leiða. Hann hefur fengið alþjóðlega viðurkenningu fyrir ábyrga meðferð fjár sem veitt er til verkefna sem unnin eru af Rótarýfélögum.

Um áratugaskeið hefur Rótarýsjóðurinn veitt ungu fólki tækifæri til að ferðast til framandi landa til að dvelja um lengri eða skemmri tíma við nám á vegum sjóðsins og í nánu sambandi við Rótarýfélaga í viðkomandi löndum. Íslenskir Rótarýfélagar hafa einnig tekið á móti fjölda erlendra skiptinema til ársdvalar á heimilum sínum og til náms í framhaldsskólum landsins.

Fleiri íslenskir umsækjendur hafa hlotið Rótarýstyrki til náms í friðarfræðum við erlenda háskóla en umsækjendur frá nokkru öðru landi. Allir hafa þeir sýnt afburðaárangur og verið ötulir boðberar friðar í heiminum í kjölfarið.

Góðar gjafir

Um árabil hefur Rótarý lagt áherslu á útrýmingu mænuveiki og er Pólíó Plús-verkefni hreyfingarinnar unnið í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Unicef. Á undanförnum árum hefur sjóður Melindu og Bill Gates einnig lagt Rótarýsjóðnum lið með því að leggja tvöfalda þá upphæð sem Rótarý safnar til þessa verkefnis, að því gefnu að Rótarýhreyfingin nái að safna ákveðinni upphæð.

Mænuveiki er landlæg í Afganistan og Pakistan auk Nígeríu en í þessum löndum hefur reynst erfitt að ná til barna til bólusetningar. Á síðustu misserum hafa komið upp mænuveikitilfelli í fleiri löndum í Asíu en einnig í Evrópulöndum.

Rótarýhreyfingin hefur því ákveðið að halda áfram að gefa fé til baráttunnar að útrýma mænuveiki fyrir 2018. Eitt af markmiðum Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi á þessu ári er að allir félagar gefi í Rótarýsjóðinn. Gjöf í Rótarýsjóðinn til stuðnings ungu fólki til náms, til útrýmingar mænuveiki og til samfélagsverkefna heima sem heiman mun gera okkur kleift að láta áfram gott af okkur leiða.




Skoðun

Sjá meira


×