Sport

Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir og Hafdís Sigurðardóttir voru öflugar um helgina.
Aníta Hinriksdóttir og Hafdís Sigurðardóttir voru öflugar um helgina. Vísir/Vilhelm
Íslenska frjálsíþróttaárið 2015 byrjar vel og enn eitt dæmi um það var velheppnað Meistaramót Íslands í nýrri Frjálsíþróttahöll FH-inga um síðustu helgi.

„Við erum gríðarlega ánægðir með hvernig frjálsíþróttahópurinn okkar kemur undan vetri. Það er bara áframhald á bætingum í stórum stíl. Það er búin að vera algjör veisla þrjár helgar í röð. Fyrst á RIG-mótinu, svo á Stórmóti ÍR og loks á Meistaramótinu,“ segir Einar Vilhjálmsson, formaður Frjálsíþróttasambandsins.

Íslensku frjálsíþróttastelpurnar eru í einstaklega góðu formi og það sést ekki síst á listanum yfir bestu afrek helgarinnar. Á topp tólf listanum eiga stelpurnar tíu afrek.

„Það er meiriháttar flott hjá þeim og við höfum líka aldrei í sögu frjálsíþrótta á Íslandi státað af eins glæsilegum ungmennahópi. Það er margt sem kemur til í því, bæði hefur unglingastarfið hjá félögunum í landinu verið gríðarlega gott og þarna kemur líka inn í innanhússaðstaðan frá aldamótum. Allt leggst þetta á eitt til að skapa nýja tíma fyrir okkur,“ segir Einar.

Aníta Hinriksdóttir og Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir settu bæði Íslandsmet í Kaplakrika á MÍ um helgina og metið sem Hrafnhild sló var búið að standa í að verða 19 ár. Aníta og Hrafnhild Eir hafa aldrei verið betri en nú og þær áttu báðar tvö afrek á topp tólf. Enginn var þó öflugri en hin magnaða Hafdís Sigurðardóttir sem átti þrjú afrek inn á topp tólf.

Aníta náði besta afrekinu þegar hún setti Íslands- og evrópskt unglingamet með því að koma í mark í 800 metra hlaupi á 2:01,77 mínútum. Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir setti sitt met í 60 metra hlaupi og bætti met frá 1996.

Kolbeinn Höður Gunnarsson var eini fulltrúi karlpeningsins á topp tólf en hann bætti Íslandsmetið í 200 metra hlaupi aðra helgina í röð. Þrjú Íslandsmet á átta dögum sýna það svart á hvítu að þar fer hlaupari á hraðri uppleið.

Ívar Kristinn Jasonarson situr í þrettánda sæti listans, næstur karlmanna á eftir Kolbeini, en hann er einnig alveg við viðmiðunarlágmark inn á Evrópumótið.

Einar horfir ekki aðeins til Ívars þegar hann talar um mögulega fjölgun í EM-hópnum.

„Vonandi á eftir að fjölga í þessum hópi frá því sem nú er. Það eru kandídatar á leiðinni sem eru með það í sigtinu, í kúlunni, í langstökkinu og í 400 metra hlaupinu. Svo er spurning hvort Einar Daði Lárusson komist að í sjöþraut því þar verða fimmtán bestu í Evrópu valdir. Það stefnir í að það verði metfjöldi Íslendinga sem nái öðru árangursviðmiði til þátttöku. Svo er það spurning hversu margir fara þegar allar reglur verða skoðaðar,“ segir Einar.

„Við viljum gefa sem flestum tækifæri,“ segir Einar en stjórn FRÍ mun fara yfir það á fimmtudag hverjir fara á EM.

„Við höfum ekki verið með þetta lúxusvandamál áður. Ég verð að passa að segja ekki of mikið um það að allir séu að fara og svo kemur eitthvað bakslag. Það er ekki skemmtilegt,“ segir Einar.

„Tveir eru búnir að tryggja sig og þrír aðrir kandidatar eru búnir að ná árangursviðmiði tvö og fleiri bætast væntanlega inn í þann hóp. Það eru nefnilega tveir til þrír í viðbót sem vonast eftir því að komast inn í þann hóp líka. Við eigum val um að senda fleiri en áður á EM,“ segir Einar.


Tengdar fréttir

Meðferðin á einstöku nafni Hrafnhild löngu hætt að pirra hana

Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir hætti í handbolta þegar hún var sautján ára og skellti sér á sína fyrstu frjálsíþróttaæfingu. Um síðustu helgi var hún aðeins tveimur sekúndubrotum frá því að setja nýtt Íslandsmet í 60 metra hlaupi.

Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót

Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×