Tökum umræðuna Björg Árnadóttir skrifar 16. janúar 2015 07:00 Af hverju fela konur á sér hárið, spyr stelpan. Af því að fólki í þessum löndum finnst hár sexí, útskýrir strákurinn. Vitleysa, hár er ekkert sexí. Á Vesturlöndum hylja konur á sér brjóstin, segi ég. Já, brjóst eru kynfæri, segir stelpan. Strákurinn andmælir: Brjóst eru ekkert kynfæri frekar en hár. Í Afríku ganga margar konur berbrjósta. Krakkarnir eru á framhaldsskólaaldri og við ræðum saman um hvað aðgreinir fólk frá ólíkum menningarheimum, hvað jarðarbúar gera hlutina ólíkt og eru ósammála um einföldustu mál. Stelpan segist fegin að búa á Íslandi þar sem við höfum réttu skoðanirnar. Ég freista þess með skýringarmynd að sýna hvað 330.000 Íslendingar eru fáir í sjö milljarða mannhafinu og hvað 1100 ára saga okkar sem þjóðar er agnarlítið brot mannkynssögunnar. Við erum dropi í hafinu. En samt er hver Íslendingur jafn mikilvægur öðrum jarðarbúum og saga okkar, menning, tunga og trú jafn mikils virði og önnur menningarsaga. Við erum hins vegar á engan hátt meiri né betri en aðrir. Margir vísir menn leggja á það áherslu að ekkert sé heiminum jafn hættulegt og þjóðernishyggja sem getur á einni nóttu eyðilagt allt sem við við eigum. Þjóðernishyggja veldur því hræðilegasta af öllu – stríði.Je suis Charlie Mannkynið hefur löngum flutt á milli staða, stundum af því að okkur langar til þess en oftar tilneydd. Í árþúsundir hafa hópar tekið sig upp og flækst um vegna erfiðra aðstæðna ýmist af manna völdum eða náttúrunnar. Nú á dögum finnst okkur sjálfsagt að ferðast og flytja á milli landa, að minnsta kosti lítum við þannig á rétt okkar sjálfra til að vera hreyfanleg. Sívaxandi alþjóðavæðing minnkar ekki nema einhvern tíma komi að því að ferðalög verði bönnuð af umhverfisástæðum. Þrátt fyrir heimshornaflakkið eigum við óskaplega erfitt með að skilja hvers vegna konur ganga með blæjur hér og ber brjóst þar – eða hvers vegna öðrum er frjálst að hæðast að því sem okkur er heilagt. Við skiljum ekki hvert annað eins og Jón Steinar Gunnlaugsson benti á í síðasta Vikulokaþætti þegar hann sagði að vænlegast væri að nálgast þá sem hafa aðrar skoðanir en við. „Við verðum að tala um hlutina,“ sagði lögmaðurinn og það segir einnig Hvítbók Evrópusambandsins um fjölmenningu (2008): „Aðeins umræða gerir fólki kleift að skapa samheldni í fjölbreytileikanum.“Aðferðin söguspuni Árin 2011-2013 tók ég þátt í stóru Evrópuverkefni um millimenningarfærni (intercultural competence) en slík færni felst í að skilja og setja sig í spor fólks frá öðrum menningarheimum og haga sér í samræmi við það. Verkefnið heitir BASICS – bibliodrama as a way of intercultural learning for adults (basics.akademia.is). Þátttakendur voru víðs vegar að, múslimar, kristnir og gyðingar auk fríþenkjara. Markmiðið var að efla samtalið um það sem er líkt og ólíkt með þjóðum. Afar mikilvægt er að tala um öðruvísileikann því án þess næst aldrei skilningur og sátt. Notuð var aðferðin bibliodrama sem við köllum söguspuna hérlendis til að fólk haldi ekki að við sitjum og lesum biblíuna. Það merka rit er þó notað ásamt öðrum trúarritum, ævintýrum og öðrum textum sem í er að finna visku um gildi fólks og viðhorf. Með aðferðum spunans færum við textana til nútímans og speglum okkur sjálf. Í gamalli, súfískri sögu getum við komið auga á kjarnann í sjálfum okkur eða séð íslenska menningu í nýju ljósi. Við fylgjumst líka með speglun annarra þátttakenda og skiljum þá betur fyrir vikið. Þannig tekst okkur að skilja hvers vegna konur hylja hár sitt eða bera brjóst eða hvað það nú er sem „hinir“ gera öðruvísi en „við“. Við skiljum það ekki bara heldur upplifum af því að við lendum í að túlka konuna með blæjuna og „hin“ lífsviðhorfin. Söguspuni er einstaklega áhrifarík aðferð til að skapa umræðu um fjölmenningu hvort heldur í blönduðum eða einsleitum hópum. Mig langaði bara til að minnast á þessa aðferð og við erum nokkur hérlendis sem notum hana. Íslenska þjóðin þarf á millimenningarumræðu að halda til að kenna því erlenda fólki sem heiðrar okkur með nærveru sinni að sjá hlutina í okkar ljósi – og okkur að sjá okkur sjálf í nýju ljósi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Olafsdóttir Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmar Heiðdal Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég neita að trúa... Guðlaug Kristjánsdóttir Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Svona eða hinsegin, hvert okkar verður næst? Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Reynisfjara og mannréttindasáttmáli Evrópu Róbert R. Spanó skrifar Skoðun Að hlúa að foreldrum: Forvörn sem skiptir máli Áróra Huld Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ákall til íslenskra stjórnmálamanna Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Þurfum við virkilega „leyniþjónustu”? Helen Olafsdóttir skrifar Skoðun Byrjað á öfugum enda! Hjálmar Heiðdal skrifar Skoðun Væri ekki hlaupið út aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gervigreind fyrir alla — en fyrir hvern í raun? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hefur ítrekað hótað okkur áður Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Bandaríkin voru alltaf vondi kallinn Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Erum við á leiðinni í hnífavesti? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar Skoðun Kæfandi klámhögg sveitarstjóra Jón Trausti Reynisson skrifar Skoðun Klár fyrir Verslunarmannahelgina? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Vegið að börnum í pólitískri aðför að ferðaþjónustunni Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Hið tæra illa Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Ferðamannaiðnaður? Nei, ferðaþjónusta! Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Hæðarveiki og lyf Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Landsvirkjun hafin yfir lög Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Þau eru framtíðin – en fá ekki að njóta nútímans Sigurður Kári skrifar Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna þegir kristin, vestræn menning? Ómar Torfason skrifar Skoðun Trump les tölvupóstinn þinn Mörður Áslaugarson skrifar Skoðun „Já, hvað með bara að skjóta hann!“ Þórhildur Hjaltadóttir skrifar Skoðun Heimar sem þurfa nýja umræðu! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sársauki annarra og samúðarþreyta Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar Skoðun Alþjóðalög eða lögleysa? Urður Hákonardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna umsóknar um aðild að ESB er stjórnsýslugrín! Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Ákall til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að standa við gefin loforð Laura Sólveig Lefort Scheefer,Snorri Hallgrímsson,Sigurlaug Eir Beck Þórsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Ida Karólína Harris,Antonia Hamann,Julien Nayet-Pelletier skrifar
Skoðun Fjárskipti við slit óvígðrar sambúðar: Meginreglur og frávik Sveinn Ævar Sveinsson skrifar
Skoðun Greiðsla með Vísakorti tryggir ekki endurgreiðslu – forfallatryggingar gagnslausar þegar mest á reynir Erna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar