Opið bréf til fyrrum útvarpsstjóra Bjarni Pétur Magnússon skrifar 14. janúar 2015 09:09 Mörgum okkar starfsmanna Ríkisútvarpsins þykir miður að lesa síðbúna áramótakveðju þína í Fréttablaðinu í dag og því get ég ekki orða bundist. Einkum og sér þykir okkur slæmt að látið er í það skína í greininni að hér hafi bara allt verið í góðu lagi þegar þú fórst frá og uppsagnir sextíu samstarfsmanna okkar hafi verið vel ígrundaðar og til þess gerðar að ná jafnvægi í rekstrinum. Ekki vitum við hvernig þú skilgreinir jafnvægi en að okkar mati „loguðu eldar“ um allt hús. Dagskrá Rásar 1 var vægast sagt í molum, ekki var hægt að reka rásina því mikið efni vantaði í dagskrána og fylla þurfti upp með endurteknu efni í síbylju, okkur sem eftir vorum ekki til sóma. Á þínum tíma sem útvarpsstjóri ríkti hér óvissu- og öryggisleysistími, uppsagnir og niðurskurður voru nánast daglegt brauð. Sá tími er ef til vill ekki liðinn en okkur starfsmönnum finnst þó sem nýir stjórnendur berjist nú sem einn maður að því að koma á auknu öryggi og betra starfsumhverfi, sem ekki var undir þinni stjórn hverju svo sem um er að kenna. Að lokum er rétt að leiðrétta það þegar þú talar um að hlutur RÚV í sjónvarpsáhorfi landsmanna hafi á síðasta ári lækkað þá er hið rétta að hlutur Ríkisútvarpsins hefur aldrei verið meiri frá upphafi rafrænna mælinga sbr. tölur frá Capacent. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Mörgum okkar starfsmanna Ríkisútvarpsins þykir miður að lesa síðbúna áramótakveðju þína í Fréttablaðinu í dag og því get ég ekki orða bundist. Einkum og sér þykir okkur slæmt að látið er í það skína í greininni að hér hafi bara allt verið í góðu lagi þegar þú fórst frá og uppsagnir sextíu samstarfsmanna okkar hafi verið vel ígrundaðar og til þess gerðar að ná jafnvægi í rekstrinum. Ekki vitum við hvernig þú skilgreinir jafnvægi en að okkar mati „loguðu eldar“ um allt hús. Dagskrá Rásar 1 var vægast sagt í molum, ekki var hægt að reka rásina því mikið efni vantaði í dagskrána og fylla þurfti upp með endurteknu efni í síbylju, okkur sem eftir vorum ekki til sóma. Á þínum tíma sem útvarpsstjóri ríkti hér óvissu- og öryggisleysistími, uppsagnir og niðurskurður voru nánast daglegt brauð. Sá tími er ef til vill ekki liðinn en okkur starfsmönnum finnst þó sem nýir stjórnendur berjist nú sem einn maður að því að koma á auknu öryggi og betra starfsumhverfi, sem ekki var undir þinni stjórn hverju svo sem um er að kenna. Að lokum er rétt að leiðrétta það þegar þú talar um að hlutur RÚV í sjónvarpsáhorfi landsmanna hafi á síðasta ári lækkað þá er hið rétta að hlutur Ríkisútvarpsins hefur aldrei verið meiri frá upphafi rafrænna mælinga sbr. tölur frá Capacent.
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun