Mengunarvaldur í vanda Jón Gíslason skrifar 10. janúar 2015 07:00 Bæjarstjórinn á Ísafirði hefur komið með rangfærslur um afleiðingar mengunar frá sorpbrennslu í Engidal. Í stað þess að gera hreint fyrir sínum dyrum neitar hann bótaskyldu, býður þó einhverjar bætur fyrir mengunartjón, en reynir um leið að koma sök á aðra.Má menga? Bæjarstjórinn segist aldrei hafa séð gögn um díoxínmengun í kjöti úr Engidal marktækt yfir mörkum. Segir að þetta kunni að hljóma undarlega og undir það skal tekið, því mengun hefur mælst víða. Til eru hámarksákvæði og aðgerðarmörk fyrir díoxín og eru aðgerðarmörkin lægri, s.s. fyrir afurðir af sauðfé og nautgripum. Upphaf málsins má rekja til greiningar MS á mjólkursýni sem sýndi mengun af díoxíni og skyldum efnum yfir hámarksgildi. Mengunin var staðfest af Matvælastofnun. Framleiðandi stöðvaði í varúðarskyni dreifingu osta sem gátu verið úr mjólk úr Engidal og Matvælastofnun stöðvaði dreifingu mjólkur frá býlinu þar sem mengun var staðfest.Mengað kjöt Mengun mældist einnig í nautakjöti marktækt yfir hámarksgildi. Framleiðandi innkallaði í varúðarskyni nautakjötsafurðir og neytendur voru upplýstir. Sýni af lambakjöti sýndu að tvö voru eðlileg miðað við bakgrunnsgildi fyrri mælinga, lítil hækkun var í tveimur, en meiri í þremur og þar af eitt yfir hámarksákvæði, þó ekki marktækt. Þetta hengir bæjarstjórinn sig á. Þar sem mælingin sýndi ekki marktæka niðurstöðu yfir hámarksgildi, þá gæti mengunin verið minni. Með sömu rökum gæti mengunin einnig verið meiri! Eigum við þá að láta sem ekkert sé?Kröfur um upplýsingar Sláturleyfishafinn ákvað í varúðarskyni að innkalla tiltekið lambakjöt. Samkvæmt matvælalöggjöf skal upplýsa neytendur og innkalla vöru ef nauðsynlegt er til að tryggja heilsuvernd. Þá voru þrjú fyrirtæki búin að grípa til ráðstafana vegna osta, nauta- og lambakjöts. Engu að síður er því haldið fram að Matvælastofnun hafi valdið uppnámi með innköllun lambakjöts frá Evrópu. Þetta er rangt og hefur stofnunin ekkert vald til þess. Hins vegar voru veittar upplýsingar þegar fjallað var um málið í erlendum fjölmiðlum, enda mikilvægir markaðir fyrir íslenskar afurðir í hættu ef ekkert væri að gert.Koma sök á aðra Nýjasta útspil bæjarstjórans er að viðurkenna að sýni af nautahakki hafi verið lítillega yfir öryggismörkum. Var það allt og sumt? Í haust lýsti hann því yfir að bændum yrðu boðnar bætur með fyrirvara um að ekki væri útilokað að sækja þær til Matvælastofnunar. Er ekki rétt að staldra við og spyrja hver hafi valdið og borið ábyrgð á menguninni, hver unnið með afleiðingar hennar og af hverju brennslunni var lokað?Skuldadagar Samkvæmt frétt í október átti að sækja bætur til Matvælastofnunar fyrir að hafa slátrað gripum án fullnægjandi gagna eða rökstuðnings. Þetta var leiðrétt því stofnunin tók aldrei slíka ákvörðun. Nú á slátrun að vera afleiðing af usla eftir innköllun í Evrópu. Enn er rangt farið með. Matvælastofnun gat hins vegar ekki heimilað dreifingu afurða nema fyrst færu fram viðamiklar mælingar. Mengun búpenings með díoxíni er ekki dýrasjúkdómur og því ekki forsendur til að fyrirskipa slátrun. Vandamálið er uppsöfnun mengunarefna sem skila sér í mjólk og kjötafurðir. Hefði slátrun verið fyrirskipuð hefði bótaskylda að líkindum færst á ríkið. Af því varð ekki og auðvelt að skilja gremju þeirra sem sitja uppi með eigið mengunartjón.Að axla ábyrgð Matvælastofnun skipaði sérfræðihóp til að fara yfir mengun í búfé og framtíð búskapar í Engidal. Hópurinn skilaði vandaðri skýrslu og þá var framkvæmd beitartilraun með stuðningi Landssamtaka sauðfjárbænda. Niðurstöður sýndu að svæðið hentar aftur til búskapar, en vakta þurfi afurðir í fyrstu. Það er mikilvægt ef vart verður mengunar að brugðist sé við gagnvart mengunarvaldi og að réttur neytenda til upplýsinga og öruggra afurða sé virtur. Matvælastofnun og fyrirtæki hafa axlað þessa ábyrgð og það gerði Ísafjarðarbær með lokun brennslunnar. Undir bótum standa svo þeir sem ábyrgir voru fyrir menguninni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 08.08.26 Halldór The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar