Ofmat Félags atvinnurekenda á virði óleystra gengislána Yngvi Örn Kristinsson skrifar 15. apríl 2015 08:00 Samkvæmt upplýsingum frá aðildarfélögum Samtaka fjármálafyrirtækja nam kröfuvirði gengislána sem enn er ágreiningur um 96 milljörðum króna í árslok 2014. Þetta er umtalsvert lægri fjárhæð en þeir 547 milljarðar króna sem Félag atvinnurekenda (FA) hefur haldið á lofti að undanförnu. Nýlega efndi FA til fundar þar sem fjallað var um stöðu gengislána íslenskra fyrirtækja. Á fundinum var kynnt greining sem unnin hafði verið fyrir FA um hversu mikið af gengislánum fyrirtækja væri enn í ágreiningi milli lánastofnana og viðskiptavina. Niðurstaða greinarinnar er að ágreiningur ríki enn um þriðjung gengislána eða um 547 ma.kr. að kröfuvirði eða sem nemur þriðjungi af landsframleiðslu. Með kröfuvirði er átt við skuld sem snýr að lánþegum. Bókfært virði lánanna kann að vera lægra, meðal annars vegna niðurfærslu við kaup á þeim frá þrotabúum banka eða seinni virðisrýrnunar. Þessari tölu var eingöngu ætlað að ná til lána stóru viðskiptabankanna þriggja til fyrirtækja. Í ljósi þeirrar staðreyndar að búið er að leysa að langstærstum hluta úr ágreiningi um gengislán viðskiptabankanna kom niðurstaða greiningar FA verulega á óvart og kallar á að málið sé skoðað ofan í kjölinn. Við þá skoðun kom í ljós að greining FA byggir á eftirfarandi flokkun Fjármálaeftirlitsins á gengislánum frá vormánuðum 2012 (sem var byggð á tölum frá árslokum 2011). Þar voru lán flokkuð eftir líkindum á því hvort gengisbinding þeirra væri lögleg með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem Hæstiréttur virtist leggja til grundvallar. Flokkarnir voru sex. Í A-flokk voru flokkuð erlend lán sem nánast var ótvírætt að væru lögleg, alls um 178 milljarðar króna að bókfærðu virði, en í aðra flokka (B til F) eftir vaxandi líkindum um ólögmæti önnur gengislán um 551 milljarður króna að bókfærðu virði. Í áætlun þeirri sem unnin var fyrir FA er gengið út frá að eingöngu lán í flokki A hafi reynst lögleg. Þessi fjárhæð er dregin frá stöðu gengislána fyrirtækja í árslok 2014 og slegið föstu að mismunur þessara talna sé bókfært virði lána sem eru í ágreiningi nú, alls 257 milljarðar króna. Til að áætla kröfuvirðið er þessi tala blásin út og miðað við 57% meðalniðurfærslu lána við kaup þeirra til nýju bankanna, sem gefur 547 milljarða króna. Þessi aðferð til að áætla ágreiningslán felur í raun í sér að gefa sér sem forsendu það sem í upphafi á að áætla. Fjárhæð fyrirtækjalána í A-flokki í árslok 2011 segir ekkert um lögleg eða óumdeild gengislán í árslok 2014. Með því er slegið föstu að lögleg gengislán hafi ekki aukist undanfarin þrjú ár. Hvort tveggja er að lán kunna að hafa verið leiðrétt sem áður voru ólögmæt og að dómstólar hafa nú dæmt lán í flokkum B og C lögleg lán, auk þess sem lán í flokki D hafa reynst að stórum hluta lögleg. Samtök fjármálafyrirtækja kölluðu eftir gögnum frá aðildarfyrirtækjum sínum um umdeild gengislán til fyrirtækja í framhaldi af málflutningi FA. Samkvæmt þeim gögnum eru umdeild gengislán fyrirtækja í árslok 2014 að kröfuvirði um 96 milljarðar króna en ekki 547 milljarðar króna eins og FA heldur fram. Það þýðir að umdeild gengislán eru ekki þriðjungur gengislána heldur um 5%. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason Skoðun Réttindi launafólks og frelsið Orri Páll Jóhannsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Skoðun Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar