Beilaði á geislafræðinni fyrir brimbrettin á Balí Guðrún Ansnes skrifar 30. september 2015 12:30 Apríl tók sig til og hentist ein til Balí fyrir um þremur árum. Hún segist ekki sjá eftir að hafa látið verða af þessu. mynd/aðsend
Lífið er ansi ljúft hjá Apríl, sem segist orðin býsna flink í að gera ekki neitt. Apríl Harpa Smáradóttir venti kvæði sínu í kross þegar hún stóð frammi fyrir að velja sér grein í háskólanum. Í stað þess að ganga um ranghala skólasvæðisins og taka þannig þátt í lífsgæðakapphlaupinu líkt og tíðkast á Vesturlöndum, sprangar Apríl um strendur Balí, brunar um á brimbretti og eyðir tímanum í jóga. Í stuttu máli er Apríl Harpa að gera akkúrat það sem skuggalega marga Íslendinga dreymir um á haustmánuðum þegar haustgolan bítur fastar og fastar.Á milli þess sem hún les bækur, skellir Apríl sér í köfun, stundar jóga eða kíkir í sólsetursbjór með vinum. Ansi ágætt.„Ég stóð á tímamótum í lífi mínu þar sem ég var að velja mér háskólanám. Ég valdi geislafræði, enda gott nám sem myndi líklegast koma mér á góðan stað í lífinu. En þessi ákvörðun gerði mig á sama tíma svo hryllilega óhamingjusama og eftir langa umhugsun varð mér ljóst að þetta væri braut mjög fjarri mínum raunverulegu draumum,“ útskýrir Apríl Harpa og bendir á að á þessum tíma hafi hún hitt konu, sem hún hafði aldrei hitt áður sem hafði sagt við hana að hún þyrfti nauðsynlega að komast til Balí. „Ég hafði aldrei hitt þessa konu, Guðbjörgu Ósk, og hún bara horfði á mig og sagði: „Þetta skaltu gera Apríl, þú þarft að flytja til Balí.“ Mér brá, hafði aldrei hugsað út í það en einhvern veginn sá hún það bara að það væri það rétta fyrir mig. Ég var komin út einum og hálfum mánuði seinna, og vissi nákvæmlega ekkert um þennan stað. Vissi ekki einu sinni að ég væri í Indónesíu fyrr en eftir um þrjár vikur.“Apríl er alsæl, svamlandi á brettinu. Hún er þó farin að hugsa sér til hreyfings og horfir til Suður Afríku.Án þess svo mikið sem gúgla svæðið, stökk okkar kona af stað, lokaði augunum og fór upp í flugvél. „En ég get ekki annað sagt en það var virkilega erfitt í fyrstu. Ég upplifði mig algjörlega eina og hugsaði með mér að ég væri klárlega að gera einhverja vitleysu. Fyrsta mánuðinn langaði mig strax aftur heim. En ég minnti þá bara sjálfa mig á það hvers vegna ég var þarna og áður en ég vissi af byrjaði ég að falla fyrir eyjunni. Einmanaleikinn og óttinn var bara ógnun við þægindahringinn, sem var nákvæmlega það sem ég var að leita eftir,“ segir Apríl, sem segist ekki sjá eftir að hafa stokkið út í óvissuna, en samhliða ævintýraleitinni hefur Apríl verið í fjarnámi í mannfræði við HÍ. „Ég reikna svo með að Suður-Afríka verði fyrir valinu næst, ég gæti hugsað mér að skrifa lokaritgerðina mína þar,“ segir Apríl Harpa hvergi nálægt því að hrista af sér ferðabakteríuna. „Lífið er einfaldlega of stutt til þess að fylgja draumunum sínum seinna.“
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Kristmundur Axel tók við af Bubba Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Sjá meira