Hefur alveg sérstakt dálæti á að hræða börn Guðrún Ansnes skrifar 25. júní 2015 10:00 Sigurjón er blússandi sáttur við heiðurinn sem felst í að tónlist barnaleikritsins skuli innblásin af HAM.fréttablaðið/andri marinó Vísir/Andri Maríno „
Þessir menn vildu bara að ég myndi gera þetta,“ segir Sigurjón Kjartansson, sem syngur Risalagið í uppsetningu Leikhópsins Lottu á Litlu gulu hænunni. Sigurjón kom ekki að lagasmíðum þó svo margan gæti grunað að svo væri, en lagið er vægast sagt ansi þungt og drungalegt, sér í lagi sé hugsað til markhóps leikhópsins. „Ég kannast nú við ýmislegt í þessu, og greinilegt að þarna eru þau undir ákveðnum áhrifum,“ segir hann dulúðlega og bætir við að hljómsveitin hans, HAM, sé að öllum líkindum innblásturinn, en Baldur Ragnarsson, gítarleikari Skálmaldar og meðlimur í leikhópnum samdi lagið. „Þetta er það sem ég kalla heiður, á meðan verið er að halda heiðurstónleika út um allan bæ, þá finnst mér þetta frábært,“ segir Sigurjón yfir sig glaður. Aðspurður um afrek sín á sviði barnaefnis stendur ekki á svörunum: „Ég er nú reyndar fræg barnastjarna, var til dæmis fyrsti Maggi mjói í Latabæ hér um árið og svo lék ég í Abbababb, sem er barnaleikrit líka.“ Sigurjón segist hafa sérlegt dálæti á að hræða börn, og það gerir hann vissulega í umræddu myndbandi. „Ég lék líka ömmu skrattans í Fóstbræðrum, og það var mikið af börnum sem hræddust mig. Raunar hræðast börn mig mikið. Mér finnst það gaman.“ Þrátt fyrir að skemmta sér konunglega í barnahræðingum, sem og upptökum við Risalagið, segist Sigurjón skellihlæjandi ekki ætla sér frekari umsvif á sviði barnaefnis.
Tengdar fréttir Kvikmyndagerðarmenn leggja Siglufjörð undir sig Baltasar Kormákur og hans fólk, 70 manna hópur, eru mætt á Siglufjörð en tökur á Ófærð sjónvarpsþáttaseríunni hefjast á mánudag. 24. janúar 2015 09:15 Útvarp Saga eða Tvíhöfði: Getur þú fundið út hvaðan ummælin koma? Sum ummælin úr Línan er opin á Útvarpi Söga minna mjög á klassísk ummæli Tvíhöfða. 22. apríl 2015 15:00 "Orðinn sérfræðingur í að skrifa afsökunarbréf“ "Það var mikið hringt og kvartað. Það er besti barómeterinn á viðbrögð, hvað er mikið kvartað,“ segir Sigurjón Kjartansson um fyrstu þætti Sigurjóns og félaga hans Jóns Gnarr í sjónvarpi. 13. febrúar 2015 15:59 Baltasar leggur Siglufjörð undir sig Baltarsar Kormákur ásamt 70 manna hópi er mættur á Siglufjörð til þess að taka upp sjónvarpsþættina Ófærð. 24. janúar 2015 11:30 Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Fleiri fréttir Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Sjá meira
Kvikmyndagerðarmenn leggja Siglufjörð undir sig Baltasar Kormákur og hans fólk, 70 manna hópur, eru mætt á Siglufjörð en tökur á Ófærð sjónvarpsþáttaseríunni hefjast á mánudag. 24. janúar 2015 09:15
Útvarp Saga eða Tvíhöfði: Getur þú fundið út hvaðan ummælin koma? Sum ummælin úr Línan er opin á Útvarpi Söga minna mjög á klassísk ummæli Tvíhöfða. 22. apríl 2015 15:00
"Orðinn sérfræðingur í að skrifa afsökunarbréf“ "Það var mikið hringt og kvartað. Það er besti barómeterinn á viðbrögð, hvað er mikið kvartað,“ segir Sigurjón Kjartansson um fyrstu þætti Sigurjóns og félaga hans Jóns Gnarr í sjónvarpi. 13. febrúar 2015 15:59
Baltasar leggur Siglufjörð undir sig Baltarsar Kormákur ásamt 70 manna hópi er mættur á Siglufjörð til þess að taka upp sjónvarpsþættina Ófærð. 24. janúar 2015 11:30