Tíu lærisveinar Rúnars björguðu stigi í uppbótartíma Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. apríl 2015 18:50 Matthías Vilhjálmsson lagði upp mark Start. mynd/ikstart.no
Start og Lilleström skildu jöfn, 1-1, í Íslendingaslag í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Lilleström jafnaði metin í uppbótartíma. Rúnar Kristinsson var að stýra Lilleström í sínum fyrsta leik í deildinni, en hann stillti Finni Orra Margeirssyni upp í byrjunarliðinu. Árni Vilhjálmsson byrjaði á bekknum. Matthías Vilhjálmsson var í byrjunarliði Start en fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson var ekki í leikmannahópnum. Markvörðurinn Ingvar Jónsson, sem kom frá Stjörnunni í vetur, sat allan tímann á bekknum. Fyrsta mark leiksins skoruðu gestirnir í Start strax á 11. mínútu, en það skoraði Espen Börufsen með skalla eftir laglega fyrirgjöf Matthíasar. Hann spilaði flott veggspil við samherja sinn áður en hann sendi boltann á kollinn á Börufsen. Lilleström varð fyrir áfalli á fyrstu sekúndum seinni hálfleiks þegar miðvörðurinn Frode Kippe lét reka sig af velli fyrir að stöðva Emil Dahle, leikmann Start, sem var að sleppa einn í gegn. Heimamenn sóttu nokkuð stíft síðustu 20 mínútur leiksins og uppskáru mark á þriðju mínútu í uppbótartíma þegar Simen Kind Mikalsen skoraði með fallegu skoti í bláhornið. Grátlegt fyrir Start en Lilleström verðskuldaði stigið. Árni Vilhjálmsson kom inn á sem varamaður fyrir Moryke Fofana á 81. mínútu og stóð sig ágætlega þær mínútur sem hann spilaði í frumraun sinni í norsku úrvalsdeildinni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Haaland sló met Agüero Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Sjá meira