Sjálfstæði Hjúkrunarfræðideildar HÍ og A-próf Karl Guðlaugsson skrifar 19. maí 2015 07:00 Verðandi hjúkrunarfræðingar BS frá Hjúkrunarfræðideild HÍ þurfa á fyrsta námsári 2015-2016 að nema; vinnulag og upplýsingatækni, heilbrigðismat, hjúkrun og hjúkrunarstarf, líffærafræði, frumulífeðlisfræði, siðfræði, almenna hjúkrun I, félagsfræði, sálfræði, samskipti, lífeðlisfræði I, næringarfræði og tölfræði. Deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar HÍ, Helga Jónsdóttir, hitti naglann á höfuðið í Fréttablaðinu 20. apríl þegar hún segir: „Þekking í hjúkrunarfræði er nátengd þekkingu í líf- og heilbrigðisvísindum, hugvísindum, félagsvísindum…“ Hvernig Helga kemst að því að A-prófið sé „góður kostur til að segja fyrir um hverjir eru líklegir til að farnast vel í námi í hjúkrunarfræði“ er mér með öllu óskiljanlegt, því A-prófið mælir ekki ofangreinda þekkingu. Síðan segir Helga: „Einnig hefur komið í ljós að tengsl eru milli árangurs í íslensku, ensku og stærðfræði í námi til stúdentsprófs og árangurs í numerus clausus-prófi en þessar sömu námsgreinar eru mikilvægir þættir A-prófsins.“ Til þess eru einmitt framhaldsskólar! Hjúkrunarfræðinemar eru búnir að taka próf og útskrifaðir í íslensku, ensku og stærðfræði. A-prófið er samið fyrir Námsmatsstofnun, en mér vitanlega hefur Námsmatsstofnun enga faglega þekkingu á hjúkrunarfræði. Með tilkomu A-prófs er því verið að gera grundvallarbreytingar á námi í hjúkrunarfræði við HÍ, þar sem alls óskyld stofnun, sem á engin tengsl við hjúkrunarfræði, er farin að velja hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar.Inntökupróf Hjúkrunarfræðideild HÍ heyrir undir Heilbrigðissvið HÍ og á ekki að láta aðra segja sér fyrir verkum. Innan Hjúkrunarfræðideildar HÍ er reynsla, færni og þekking og deildin á að búa yfir sjálfstæði til að velja hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar. Inntökupróf, sem þreytt væri í júní ár hvert, ætti að vera samið af starfsmönnum Hjúkrunarfræðideildar HÍ og reyna á hæfni í líf- og heilbrigðisvísindum, hugvísindum, félagsvísindum og kannski því mikilvægasta, félagsfærni. Slíkt inntökupróf mun verða miklu farsælla við val á verðandi hjúkrunarfræðingum, enda prófað í því sem verðandi hjúkrunarfræðingar eru að fara að læra, en ekki í því sem þeir eru búnir að læra í framhaldsskóla! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Verðandi hjúkrunarfræðingar BS frá Hjúkrunarfræðideild HÍ þurfa á fyrsta námsári 2015-2016 að nema; vinnulag og upplýsingatækni, heilbrigðismat, hjúkrun og hjúkrunarstarf, líffærafræði, frumulífeðlisfræði, siðfræði, almenna hjúkrun I, félagsfræði, sálfræði, samskipti, lífeðlisfræði I, næringarfræði og tölfræði. Deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar HÍ, Helga Jónsdóttir, hitti naglann á höfuðið í Fréttablaðinu 20. apríl þegar hún segir: „Þekking í hjúkrunarfræði er nátengd þekkingu í líf- og heilbrigðisvísindum, hugvísindum, félagsvísindum…“ Hvernig Helga kemst að því að A-prófið sé „góður kostur til að segja fyrir um hverjir eru líklegir til að farnast vel í námi í hjúkrunarfræði“ er mér með öllu óskiljanlegt, því A-prófið mælir ekki ofangreinda þekkingu. Síðan segir Helga: „Einnig hefur komið í ljós að tengsl eru milli árangurs í íslensku, ensku og stærðfræði í námi til stúdentsprófs og árangurs í numerus clausus-prófi en þessar sömu námsgreinar eru mikilvægir þættir A-prófsins.“ Til þess eru einmitt framhaldsskólar! Hjúkrunarfræðinemar eru búnir að taka próf og útskrifaðir í íslensku, ensku og stærðfræði. A-prófið er samið fyrir Námsmatsstofnun, en mér vitanlega hefur Námsmatsstofnun enga faglega þekkingu á hjúkrunarfræði. Með tilkomu A-prófs er því verið að gera grundvallarbreytingar á námi í hjúkrunarfræði við HÍ, þar sem alls óskyld stofnun, sem á engin tengsl við hjúkrunarfræði, er farin að velja hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar.Inntökupróf Hjúkrunarfræðideild HÍ heyrir undir Heilbrigðissvið HÍ og á ekki að láta aðra segja sér fyrir verkum. Innan Hjúkrunarfræðideildar HÍ er reynsla, færni og þekking og deildin á að búa yfir sjálfstæði til að velja hjúkrunarfræðinga framtíðarinnar. Inntökupróf, sem þreytt væri í júní ár hvert, ætti að vera samið af starfsmönnum Hjúkrunarfræðideildar HÍ og reyna á hæfni í líf- og heilbrigðisvísindum, hugvísindum, félagsvísindum og kannski því mikilvægasta, félagsfærni. Slíkt inntökupróf mun verða miklu farsælla við val á verðandi hjúkrunarfræðingum, enda prófað í því sem verðandi hjúkrunarfræðingar eru að fara að læra, en ekki í því sem þeir eru búnir að læra í framhaldsskóla!
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun