Stebbi Hilmars boðinn upp Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 19. maí 2015 10:00 Íris Stefanía, framkvæmdastýra hjá List án landamæra hvetur alla til þess að koma við í Gamla bíói í dag. Vísir/Ernir „
Það sem er gaman við þetta er að listamennirnir sjálfir gefa verkin, þau koma ekki úr einkasafni heldur frá listamönnunum sjálfum,“ segir Íris Stefanía Skúladóttir, framkvæmdastýra hjá List án landamæra. Í dag verður haldið uppboð til styrktar hátíðinni í Gamla bíói, en hátíðin í ár var sett þann 10. apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur til 31. maí næstkomandi. List án landamæra er árleg listahátíð sem leggur áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Markmið hátíðarinnar, sem haldin hefur verið frá árinu 2003, er að auka gæði, gleði, aðgengi, fjölbreytni og jafnrétti í menningarlífinu og koma list fólks með fötlun á framfæri og stuðla að samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Á uppboðinu verða 65 verk boðin upp eftir 57 listamenn sem koma úr ólíkum áttum, þjóðþekktir og minna þekktir.Brúðan sem gerð er af Kristjáni Ellert Arasyni.„Við fengum óvænta glaðninga áðan. Steingrímur Eyfjörð og Hekla Dögg Jónsdóttir ákváðu að skella verkum í uppboðið, þau höfðu frétt af þessu og langaði til þess að gefa,“ segir Íris Stefanía glöð í bragði og bætir við að aðstandendur hátíðarinnar séu gífurlega þakklátir framlagi þeirra listamanna sem ákveðið hafi að gefa verk, og einnig gefi allt starfsfólk vinnu sína. Ágóði uppboðsins rennur allur óskiptur til hátíðarinnar sem mun halda áfram að vinna í þágu jafnréttis í menningarlífinu með því að styðja við listafólk með fötlun. Fjölbreyttir listamenn taka þátt í uppboðinu og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Um er að ræða þögult uppboð og hægt verður að bjóða í meiri hluta verkanna með því að skrá upphæðina á blað við hlið verka sem á uppboðinu verða en hægt er að skrá sig til þátttöku á vefsíðunni Midi.is eða með því að mæta á staðinn. „Það verða meðal annars margar af stjörnum hátíðarinnar. Til dæmis Karl Guðmundsson, Kalli, sem er listamaður Listar án landamæra 2015, Ísak Óli, sem sést á fleiri heimilum á landinu heldur en margir þjóðþekkir listmenn og Gígja Thoroddsen sem hefur verið í mörg ár á opnunum í Ráðhúsinu.“ Meðal verka sem boðin verða upp er forláta brúða af tónlistarmanninum Stefáni Hilmarssyni, sem listamaðurinn Kristján Ellert Arason saumaði með kambgarni í striga. „Ef ég væri Stefán Hilmarsson myndi ég ekki hika við að næla mér í hana,“ segir Íris Stefanía glaðlega um brúðuna, sem er þannig frágengin að hægt er að hengja hana upp á vegg. Uppboðið hefst klukkan 17.00 í Gamla bíói. Logi Bergmann verður kynnir og uppboðshaldari verður Viktor Smári hjá Stúdíó Stafn og Kenneth Máni sér um að skemmta gestum en einnig verður boðið upp á léttar veitingar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðunni Listin.is.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira