Sigmar Ingi á leið í Keflavík Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. júlí 2015 13:30 Sigmar Ingi í leik með Haukum gegn KV í 1. deildinni í fyrra. vísir/daníel
Keflavík, botnlið Pepsi-deildar karla í fótbolta, er búið að finna markvörðinn sem það hefur leitað að síðan Hollendingurinn Richards Arends var sendur heim. Sigmar Ingi Sigurðarson, fyrrverandi markvörður Breiðabliks, Hauka og Fram gengur í raðir liðsins í dag en verið er að ganga frá samningi við hann. „Hann kemur með reynslu inn í þetta og hjálpar Sindra líka. Það er flott að fá svona sterkan karakter inn í þetta hjá okkur,“ segir Jóhann B. Guðmundsson, annar þjálfara Keflavíkur, við Vísi. En kemur hann til með að verða aðalmarkvörður? „Hann verður bara í baráttunni við Sindra og svo skoðum við það í framhaldinu. Við höfum verið ánægðir með Sindra,“ segir Jóhann. Sigmar Ingi er uppalinn Bliki og spilaði sína fyrstu leiki með Kópavogsliðinu 2003. Hann varði síðan mark Hvatar og ÍH áður en hann gekk aftur í raðir Breiðabliks 2009. Hann var þá varamarkvörður Ingvars kale en spilaði átta leiki 2011 og níu leiki 2012 áður en hann gekk svo í raðir Hauka þar sem hann spilaði alla deildarleiki liðsins bæði 2013 og 2014. Sigmar yfirgaf Hauka síðasta vetur og samdi við Fram. Hann varði mark liðsins í fyrstu tveimur leikjum 1. deildarinnar og tveimur bikarleikjum áður en hann missti stöðuna í hendur Bandaríkjamannsins Cody Mizell. Sigmar Ingi verður væntanlega í hópnum í næsta leik Keflavíkur á miðvikudaginn kemur þegar botnliðið heimsækir uppeldisfélag hans, Breiðablik.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúla 1 Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn „Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Sport Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Sport Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Handbolti „Ég set blóð, svita og tár í þetta og mér finnst ekkert skemmtilegra“ Sport Dagskráin í dag: Slegist á Skaganum, keyrt í Kína, enski boltinn rúllar og rúgbíið bíður Sport Fleiri fréttir Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Sjá meira