Ábyrgð sveitarfélaga við ráðningar forstöðumanna bókasafna Sveinn Ólafsson skrifar 1. apríl 2015 09:57 Dómur féll 26. mars í máli sem bókasafns- og upplýsingafræðingur höfðaði gegn Seltjarnarnesbæ, vegna þess að gengið var fram hjá honum við ráðningu í starf forstöðumanns bókasafns bæjarins, og í þess stað ráðin kona sem ekki hafði próf í bókasafns- og upplýsingafræðum. Um hálfrar aldar skeið hafa verið ákvæði í lögum um almenningsbókasöfn þess efnis að í þessi störf skuli ráða fólk sem hefur lokið prófi í bókasafns- og upplýsingafræðum eða sambærilegu prófi, sé þess kostur. Þetta ákvæði hefur verið tekið upp í ný lög, nú síðast í Bókasafnalög frá árinu 2012, og sýnir að löggjafinn metur fagþekkingu á þessu sviði mikilvæga við rekstur bókasafnanna. Bærinn var dæmdur til að greiða bókasafns- og upplýsingafræðingnum miskabætur, sem og allan málskostnað, sem var dæmdur nokkuð hár í þessu máli. Ljóst er að embættismenn bæjarins hafa gengið fram hjá þessu lagaákvæði og verður bærinn að gjalda þess núna. Hlutverk bókasafna er að breytast ört vegna nýrrar tækni, og almenningsbókasöfn hafa tekið að sér æ stærri hlutverk í menningarmálum. Þannig er háttað á Seltjarnarnesi, þar sem forstöðumaður bókasafns var settur yfir menningarmál bæjarins fyrir nokkrum árum. Enn var þó aðalhlutverk forstöðumannsins stjórnun bókasafns, hvort sem litið var til fjölda starfsmanna eða til umfangs á annan hátt. Þetta er að gerast á svipaðan hátt víða um land og mikilvægt að hafa í huga að kjarnahlutverk bókasafnanna hefur ekki breyst. Vilji löggjafans og dómurinn 26. mars undirstrika þetta. Nám í bókasafns- og upplýsingafræðum miðar að öllum þáttum í rekstri bókasafnanna. Forráðamenn sveitarstjórna bera ábyrgð á að hlúa að bókasöfnunum, sem eru mikilvægur þáttur í félagslegri þjónustu hvers sveitarfélags, og velja til þess fólk með fagþekkingu sem er einmitt á þessu sviði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir Skoðun Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Grétar Már Axelsson Skoðun Sérstök vitleysa Albert Björn Lúðvígsson Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson Skoðun Við unga fólkið viljum fá sæti við borðið Selma Rós Axelsdóttir Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson Skoðun Aleinn í heiminum? Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viltu koma í ferðalag? Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun „Ég kýs homma“ Óli Gunnar Gunnarsson skrifar Skoðun Forseti sem svarar á mannamáli Erna Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Hugrekki Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing SFS? Friðleifur Egill Guðmundsson skrifar Skoðun Jón Gnarr fyrir dýraverndina Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Mannréttindastofnun verður að veruleika Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Samstarf við landsbyggðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Lausnin út í mýri? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Skoðun Takk Ísland fyrir upplýsandi kosningabaráttu! Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Forseti sem gefur kjark og von Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Við unga fólkið viljum fá sæti við borðið Selma Rós Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands - Tími fyrir lausnir! Victor Gudmundsson skrifar Skoðun Offita er langvinnur sjúkdómur Hópur fólks í stjórn Félags fagfólks um offitu skrifar Skoðun Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Grétar Már Axelsson skrifar Skoðun Mynda þurfti ríkisstjórn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kletturinn Katrín Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er svarið Nótt Thorberg skrifar Skoðun Aleinn í heiminum? Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Almenn kvíðaröskun: léttvægt vandamál eða áhyggjuefni? Sævar Már Gústavsson skrifar Skoðun Lokað á börn í vanda Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Sérstök vitleysa Albert Björn Lúðvígsson skrifar Skoðun Fjarheilbrigðisþjónusta Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Ég Gísli Hvanndal Jakobsson ætla í framboð til Alþingis með Vinstri grænum Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Forsetaframbjóðandi með sömu tölu og Jesú Gunnar Karl Halldórsson skrifar Skoðun Einfaldara fyrirkomulag tilvísana Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Málið á að endurspegla fólkið í landinu Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Hreyfing og tengsl Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir skrifar Skoðun Eru byssur meira fullorðins? Oddný G. Harðardóttir skrifar Sjá meira
Dómur féll 26. mars í máli sem bókasafns- og upplýsingafræðingur höfðaði gegn Seltjarnarnesbæ, vegna þess að gengið var fram hjá honum við ráðningu í starf forstöðumanns bókasafns bæjarins, og í þess stað ráðin kona sem ekki hafði próf í bókasafns- og upplýsingafræðum. Um hálfrar aldar skeið hafa verið ákvæði í lögum um almenningsbókasöfn þess efnis að í þessi störf skuli ráða fólk sem hefur lokið prófi í bókasafns- og upplýsingafræðum eða sambærilegu prófi, sé þess kostur. Þetta ákvæði hefur verið tekið upp í ný lög, nú síðast í Bókasafnalög frá árinu 2012, og sýnir að löggjafinn metur fagþekkingu á þessu sviði mikilvæga við rekstur bókasafnanna. Bærinn var dæmdur til að greiða bókasafns- og upplýsingafræðingnum miskabætur, sem og allan málskostnað, sem var dæmdur nokkuð hár í þessu máli. Ljóst er að embættismenn bæjarins hafa gengið fram hjá þessu lagaákvæði og verður bærinn að gjalda þess núna. Hlutverk bókasafna er að breytast ört vegna nýrrar tækni, og almenningsbókasöfn hafa tekið að sér æ stærri hlutverk í menningarmálum. Þannig er háttað á Seltjarnarnesi, þar sem forstöðumaður bókasafns var settur yfir menningarmál bæjarins fyrir nokkrum árum. Enn var þó aðalhlutverk forstöðumannsins stjórnun bókasafns, hvort sem litið var til fjölda starfsmanna eða til umfangs á annan hátt. Þetta er að gerast á svipaðan hátt víða um land og mikilvægt að hafa í huga að kjarnahlutverk bókasafnanna hefur ekki breyst. Vilji löggjafans og dómurinn 26. mars undirstrika þetta. Nám í bókasafns- og upplýsingafræðum miðar að öllum þáttum í rekstri bókasafnanna. Forráðamenn sveitarstjórna bera ábyrgð á að hlúa að bókasöfnunum, sem eru mikilvægur þáttur í félagslegri þjónustu hvers sveitarfélags, og velja til þess fólk með fagþekkingu sem er einmitt á þessu sviði.
Skoðun Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks Bjarndís Helga Tómasdóttir,Daníel E. Arnarsson skrifar
Skoðun Ég Gísli Hvanndal Jakobsson ætla í framboð til Alþingis með Vinstri grænum Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar