Áhugaverð viðfangsefni á Degi verkfræðinnar Kristinn Andersen skrifar 10. apríl 2015 07:00 Dagur verkfræðinnar er í fyrsta skipti haldinn í dag, föstudaginn 10. apríl, en Verkfræðingafélag Íslands hefur valið þennan dag til þess að vekja athygli á störfum verkfræðinga og viðfangsefnum þeirra í atvinnulífi, rannsóknum og nýsköpun. Verkfræðin kemur víða við sögu í uppbyggingu atvinnulífs og bættra lífsskilyrða í harðbýlu landi og ennþá eru tækifærin næg, hvort sem er í hefðbundnum greinum verkfræðinnar eða þeim nýju sem komið hafa fram á undanförnum árum. Í hugbúnaðariðnaðinum, þróun innviða og hátækni fyrir heilbrigðisþjónustu, samgöngum, orkugreinum eða nýsköpun í atvinnulífinu – á öllum þessum sviðum koma verkfræðingar við sögu með þá þekkingu og færni sem byggir á krefjandi námi og reynslu við lausn margbreytilegra viðfangsefna. Í tilefni dagsins gengst Verkfræðingafélag Íslands fyrir ráðstefnu sem hefst kl. 13 á Hótel Nordica, en hún er opin almenningi jafnt sem verkfræðingum og félagsmönnum VFÍ. Þar er annars vegar vakin athygli á verðmætasköpun verkfræðinnar og hins vegar þætti verkfræðinnar í uppbyggingu innviða heilbrigðisþjónustunnar. Verðmætasköpun tekur á sig ýmsar myndir, allt frá sölu verkfræðiþekkingar út í heim til stórstígra framfara í vinnslu sjávarafurða, öflun orku úr vindinum, verkfræðirannsókna og verkfræði með tilliti til sjálfbærni. Á sviði heilbrigðisþjónustu og innviða hennar koma verkfræðingar víða við sögu. Umræða um byggingu húsnæðis og aðstöðu hefur vart farið framhjá neinum, en verkfræðingar koma einnig að hönnun og þróun tæknibúnaðarins sem stendur undir nútíma heilbrigðisþjónustu – allt frá heilsugæslustöðvum til hátæknisjúkrahúsa. Um þessi málefni og önnur áhugaverð viðfangsefni verkfræðinga verður fjallað á ráðstefnunni á Degi verkfræðinnar. Sérstaklega er ástæða til að hvetja ungt fólk til þess að kynna sér þessi viðfangsefni og sækja ráðstefnuna, en þar fara jafnframt fram kynningar á vegum háskólanna sem kenna verkfræðigreinar hérlendis og kynnt verða áhugaverð verkefni sprotafyrirtækja, alþjóðleg þróunarverkefni og viðfangsefni ungra frumkvöðla á sviði verkfræði. Með Degi verkfræðinnar er ætlun okkar í Verkfræðingafélagi Íslands að hefja árvissan viðburð sem veki áhuga og skilning á þeim fjölbreytilegu og mikilvægu verkefnum sem verkfræðingar starfa við.Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Dagur verkfræðinnar er í fyrsta skipti haldinn í dag, föstudaginn 10. apríl, en Verkfræðingafélag Íslands hefur valið þennan dag til þess að vekja athygli á störfum verkfræðinga og viðfangsefnum þeirra í atvinnulífi, rannsóknum og nýsköpun. Verkfræðin kemur víða við sögu í uppbyggingu atvinnulífs og bættra lífsskilyrða í harðbýlu landi og ennþá eru tækifærin næg, hvort sem er í hefðbundnum greinum verkfræðinnar eða þeim nýju sem komið hafa fram á undanförnum árum. Í hugbúnaðariðnaðinum, þróun innviða og hátækni fyrir heilbrigðisþjónustu, samgöngum, orkugreinum eða nýsköpun í atvinnulífinu – á öllum þessum sviðum koma verkfræðingar við sögu með þá þekkingu og færni sem byggir á krefjandi námi og reynslu við lausn margbreytilegra viðfangsefna. Í tilefni dagsins gengst Verkfræðingafélag Íslands fyrir ráðstefnu sem hefst kl. 13 á Hótel Nordica, en hún er opin almenningi jafnt sem verkfræðingum og félagsmönnum VFÍ. Þar er annars vegar vakin athygli á verðmætasköpun verkfræðinnar og hins vegar þætti verkfræðinnar í uppbyggingu innviða heilbrigðisþjónustunnar. Verðmætasköpun tekur á sig ýmsar myndir, allt frá sölu verkfræðiþekkingar út í heim til stórstígra framfara í vinnslu sjávarafurða, öflun orku úr vindinum, verkfræðirannsókna og verkfræði með tilliti til sjálfbærni. Á sviði heilbrigðisþjónustu og innviða hennar koma verkfræðingar víða við sögu. Umræða um byggingu húsnæðis og aðstöðu hefur vart farið framhjá neinum, en verkfræðingar koma einnig að hönnun og þróun tæknibúnaðarins sem stendur undir nútíma heilbrigðisþjónustu – allt frá heilsugæslustöðvum til hátæknisjúkrahúsa. Um þessi málefni og önnur áhugaverð viðfangsefni verkfræðinga verður fjallað á ráðstefnunni á Degi verkfræðinnar. Sérstaklega er ástæða til að hvetja ungt fólk til þess að kynna sér þessi viðfangsefni og sækja ráðstefnuna, en þar fara jafnframt fram kynningar á vegum háskólanna sem kenna verkfræðigreinar hérlendis og kynnt verða áhugaverð verkefni sprotafyrirtækja, alþjóðleg þróunarverkefni og viðfangsefni ungra frumkvöðla á sviði verkfræði. Með Degi verkfræðinnar er ætlun okkar í Verkfræðingafélagi Íslands að hefja árvissan viðburð sem veki áhuga og skilning á þeim fjölbreytilegu og mikilvægu verkefnum sem verkfræðingar starfa við.Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is.
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar