Davíð Oddsson: Starf jólasveins það besta sem ég hef gegnt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. maí 2015 21:09 Davíð Oddsson Vísir/Anton Brink
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, segist alla tíð hafa borgað skatt af tekjum sínum ef frá er talið tímabilið sem hann starfaði sem jólasveinn. Þá upplýsir hann í stuttu viðtali við vefsjónvarpsþáttinn Áttuna að Gordon Brown sé meiri skúrkur en bæði Svarthöfði og Voldemort. Davíð var spurður nokkurra skrýtinna spurninga í viðtalinu og meðal annars út í feril sinn og þau störf sem hann hefur gengið í. „Ég var jólasveinn um tíma og það var eiginlega besta jobb sem ég hef haft, af því við borguðum enga skatta. Pétur Pétursson þulur sem var umboðsmaður okkar sagði okkur frá því að Leppalúði hafði samið um það við ríkisskattstjóra um að þetta væri skattfrjálst.“ Bætti Davíð við að síðan þá hefði hann greitt skatt af tekjum sínum.Gordon Brown var forsætisráðherra þegar hryðjuverkalögin voru sett.Vísir/GettyGordon Brown mesti skúrkurinn Spyrillinn, Ragnar Jónsson, bað í kjölfarið Davíð um að gera upp á milli fjögurra aðila. Voldemort, Sauron, Darth Vader og Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. „Af þessum sem þú nefnir finnst mér mest til um frú Thatcher og Winston Churchill,“ sagði Davíð. En hver þeirra fjögurra er mesti skúrkurinn? „Gordon var alltaf í hnút. Þess vegna er nú þetta fræga nafn, Gordonshnúturinn. Án þess að ég vilji gera upp á milli og særa hina þá hafi hann verið mesti skúrkurinn.“ Fimmta og síðasta spurningin sneri svo að því hvort Davíð þætti betra, Honey Nut Cheerios eða venjulegt? „Ég hef aldrei verið spurður að þessu áður. Spurning af þessu tagi kemur dálítið aftan að manni,“ sagði Davíð í gríni og lét ekki slá sig út af laginu. „Ég var að vona að þú spyrðir um Kornflex. Ég borðaði yfirleitt Kornflex áður en ég byrjaði að borða hafragraut,“ sagði Davíð og upplýsti að hann borðaði ekki hunang. Honum væri illa við vespur.Viðtalið má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Námið ekki eins krefjandi og á Tene Tónlist Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Lífið Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Lífið Fleiri fréttir Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Sjá meira