Gjöf í Rótarýsjóðinn er góð gjöf Birna Bjarnadóttir skrifar 19. febrúar 2015 07:00 Tæplega tólf hundruð félagar bæði konur og karlar eru í Rótarýhreyfingunni á Íslandi í um 30 klúbbum um allt land. Þessi hópur hefur nú ákveðið að vekja athygli á starfi hreyfingarinnar með virkri kynningu í fjölmiðlum og á mannamótum. Samkvæmt könnunum hafa 40% aðspurðra aldrei heyrt minnst á Rótarý og aðeins 20% þekkja eitthvað til Rótarý en geta ekki sagt hvað það er annað en að félagarnir hittast einu sinni í viku til að borða saman. En Rótarý er svo miklu meira en matur, fundahöld og fræðsluerindi. Rótarýsjóðurinn er kjarninn í starfi Rótarý. Rótarýsjóðurinn er byggður upp með framlögum Rótarýfélaga, einstaklinga, sjóða og fyrirtækja. Hann er einn stærsti sjóður í heiminum í eigu félagasamtaka sem leggur áherslu á að láta gott af sér leiða. Hann hefur fengið alþjóðlega viðurkenningu fyrir ábyrga meðferð fjár sem veitt er til verkefna sem unnin eru af Rótarýfélögum. Um áratugaskeið hefur Rótarýsjóðurinn veitt ungu fólki tækifæri til að ferðast til framandi landa til að dvelja um lengri eða skemmri tíma við nám á vegum sjóðsins og í nánu sambandi við Rótarýfélaga í viðkomandi löndum. Íslenskir Rótarýfélagar hafa einnig tekið á móti fjölda erlendra skiptinema til ársdvalar á heimilum sínum og til náms í framhaldsskólum landsins. Fleiri íslenskir umsækjendur hafa hlotið Rótarýstyrki til náms í friðarfræðum við erlenda háskóla en umsækjendur frá nokkru öðru landi. Allir hafa þeir sýnt afburðaárangur og verið ötulir boðberar friðar í heiminum í kjölfarið.Góðar gjafir Um árabil hefur Rótarý lagt áherslu á útrýmingu mænuveiki og er Pólíó Plús-verkefni hreyfingarinnar unnið í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Unicef. Á undanförnum árum hefur sjóður Melindu og Bill Gates einnig lagt Rótarýsjóðnum lið með því að leggja tvöfalda þá upphæð sem Rótarý safnar til þessa verkefnis, að því gefnu að Rótarýhreyfingin nái að safna ákveðinni upphæð. Mænuveiki er landlæg í Afganistan og Pakistan auk Nígeríu en í þessum löndum hefur reynst erfitt að ná til barna til bólusetningar. Á síðustu misserum hafa komið upp mænuveikitilfelli í fleiri löndum í Asíu en einnig í Evrópulöndum. Rótarýhreyfingin hefur því ákveðið að halda áfram að gefa fé til baráttunnar að útrýma mænuveiki fyrir 2018. Eitt af markmiðum Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi á þessu ári er að allir félagar gefi í Rótarýsjóðinn. Gjöf í Rótarýsjóðinn til stuðnings ungu fólki til náms, til útrýmingar mænuveiki og til samfélagsverkefna heima sem heiman mun gera okkur kleift að láta áfram gott af okkur leiða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Tæplega tólf hundruð félagar bæði konur og karlar eru í Rótarýhreyfingunni á Íslandi í um 30 klúbbum um allt land. Þessi hópur hefur nú ákveðið að vekja athygli á starfi hreyfingarinnar með virkri kynningu í fjölmiðlum og á mannamótum. Samkvæmt könnunum hafa 40% aðspurðra aldrei heyrt minnst á Rótarý og aðeins 20% þekkja eitthvað til Rótarý en geta ekki sagt hvað það er annað en að félagarnir hittast einu sinni í viku til að borða saman. En Rótarý er svo miklu meira en matur, fundahöld og fræðsluerindi. Rótarýsjóðurinn er kjarninn í starfi Rótarý. Rótarýsjóðurinn er byggður upp með framlögum Rótarýfélaga, einstaklinga, sjóða og fyrirtækja. Hann er einn stærsti sjóður í heiminum í eigu félagasamtaka sem leggur áherslu á að láta gott af sér leiða. Hann hefur fengið alþjóðlega viðurkenningu fyrir ábyrga meðferð fjár sem veitt er til verkefna sem unnin eru af Rótarýfélögum. Um áratugaskeið hefur Rótarýsjóðurinn veitt ungu fólki tækifæri til að ferðast til framandi landa til að dvelja um lengri eða skemmri tíma við nám á vegum sjóðsins og í nánu sambandi við Rótarýfélaga í viðkomandi löndum. Íslenskir Rótarýfélagar hafa einnig tekið á móti fjölda erlendra skiptinema til ársdvalar á heimilum sínum og til náms í framhaldsskólum landsins. Fleiri íslenskir umsækjendur hafa hlotið Rótarýstyrki til náms í friðarfræðum við erlenda háskóla en umsækjendur frá nokkru öðru landi. Allir hafa þeir sýnt afburðaárangur og verið ötulir boðberar friðar í heiminum í kjölfarið.Góðar gjafir Um árabil hefur Rótarý lagt áherslu á útrýmingu mænuveiki og er Pólíó Plús-verkefni hreyfingarinnar unnið í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Unicef. Á undanförnum árum hefur sjóður Melindu og Bill Gates einnig lagt Rótarýsjóðnum lið með því að leggja tvöfalda þá upphæð sem Rótarý safnar til þessa verkefnis, að því gefnu að Rótarýhreyfingin nái að safna ákveðinni upphæð. Mænuveiki er landlæg í Afganistan og Pakistan auk Nígeríu en í þessum löndum hefur reynst erfitt að ná til barna til bólusetningar. Á síðustu misserum hafa komið upp mænuveikitilfelli í fleiri löndum í Asíu en einnig í Evrópulöndum. Rótarýhreyfingin hefur því ákveðið að halda áfram að gefa fé til baráttunnar að útrýma mænuveiki fyrir 2018. Eitt af markmiðum Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi á þessu ári er að allir félagar gefi í Rótarýsjóðinn. Gjöf í Rótarýsjóðinn til stuðnings ungu fólki til náms, til útrýmingar mænuveiki og til samfélagsverkefna heima sem heiman mun gera okkur kleift að láta áfram gott af okkur leiða.
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun