KA nálgast toppliðin | Guðmundur Atli með þrennu í Kórnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2015 21:21 Elfar Árni skoraði fyrir KA gegn Fjarðabyggð. vísir/stefán
Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Fjarðabyggð virðist vera að fatast flugið en Austfirðingar töpuðu 2-1 fyrir KA á útivelli. Ben Everson kom KA yfir á 14. mínútu og eftir fjögurra mínútna leik í seinni hálfleik skoraði Elfar Árni Aðalsteinsson annað mark Akureyringa. Ólafur Örn Eyjólfsson klóraði í bakkann fyrir Fjarðabyggð í uppbótartíma en nær komust gestirnir ekki. Sigurinn var lífsnauðsynlegur fyrir KA sem er nú í 4. sæti með 22 stig, fjórum stigum frá 2. sæti deildarinnar. Liðið sem situr í því, Víkingur Ólafsvík, á þó leik inni. Þetta var annað tap Fjarðabyggðar í röð en liðið er enn í 3. sætinu með 24 stig. Aron Jóhannsson var hetja Hauka sem náðu í gott stig gegn Grindavík á útivelli. Grindvíkingar, sem hafa verið á mikilli siglingu að undanförnu, voru komnir 2-0 eftir 27 mínútna leik, með mörkum Jósefs Kristins Jósefssonar og Alex Freys Hilmarssonar. En Björgvin Stefánsson minnkaði muninn í 2-1 á lokamínútu fyrri hálfleiks með sínu níunda deildarmarki í sumar. Það var svo Aron sem jafnaði metin í 2-2, mínútu fyrir leikslok. Haukar eru í 8. sæti deildarinnar með 17 stig en Grindavík er í því fimmta með 21 stig. Þá vann HK 4-0 stórsigur á Selfossi í Kórnum. Þetta var fjórði sigur HK í síðustu sex leikjum. Guðmundur Atli Steinþórsson, framherji HK, var í miklu stuði í kvöld en hann gerði þrennu. Andri Geir Alexandersson skoraði fyrsta mark HK. Guðmundur er nú orðinn markahæsti leikmaður 1. deildar með 10 mörk en átta þeirra hafa komið í síðustu sex leikjum HK sem er í 7. sæti deildarinnar með 18 stig. Selfoss er hins vegar í 9. sætinu með 13 stig.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Úrslit.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Sjá meira