Vietto bjargaði stigi fyrir Atletico Madrid Kristinn Páll Teitsson skrifar 4. október 2015 20:15 Benzema kom Real Madrid yfir í upphafi leiks. vísir/getty
Luciano Vietto bjargaði stigi fyrir Atletico Madrid í 1-1 jafntefli gegn erkifjendunum í Real Madrid í spænsku úrvalsdeildininni í kvöld. Benzema kom Real Madrid yfir í upphafi leiks en Vietto jafnaði metin sjö mínútum fyrir leikslok. Lærisveinar Rafa Benitez fengu góða byrjun í leiknum en Karim Benzema kom Real Madrid yfir með skalla af stuttu færi á 9. mínútu leiksins. Heimamenn í Atletico Madrid fengu tækifæri til að jafna metin af vítapunktinum á 22. mínútu en Antonio Griezmann lét Keylor Navas verja frá sér og leiddi Real Madrid í hálfleik. Í seinni hálfleik færðu leikmenn Atletico Madrid sig framar á völlinn og náðu að jafna metin tæplega tíu mínútum fyrir leikslok. Griezmann reyndi þá að stýra boltanum í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf Jackson Martínez en skot hans fór beint fyrir fætur Vietto sem setti boltann í autt netið af stuttu færi. Heimamenn voru líklegri til að bæta við marki heldur en Real Madrid en Keylor Navas þurfti að hafa sig allan við að verja skot frá Jackson Martinez í uppbótartíma. Liðunum tókst ekki að bæta við marki og skyldu þau því jöfn. Real Madrid skaust upp í 2. sæti með 15 stig með jafnteflinu en Atletico Madrid er í 5. sæti með 13 stig.
Spænski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira