Ber stjórn "endanlega ábyrgð á starfsemi“ hlutafélags“? Helga Hlín Hákonardóttir skrifar 10. júní 2015 09:45 „Hvert er hlutverk mitt í stjórn hlutafélags og hvernig sinni ég stjórnarstörfum?“ eru algengar spurningar nýrra stjórnarmanna og jafnvel þeirra reyndari sem vilja tileinka sér bætta stjórnarhætti. Hér eru á ferðinni tvær grundvallarspurningar – sem reyndar eru af ólíkum meiði.Hlutverk Annars vegar er spurt um hlutverk stjórnar og ábyrgð, sem henni er m.a. falið skv. lögum um hlutafélög, samþykktum og ákvörðunum hluthafafunda. Ákvæði hlutafélagalaga kveða m.a. á um að stjórn fari með æðsta vald milli hluthafafunda, annist að skipulag og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi, móti stefnu til framtíðar og ráði og hafi eftirlit með framkvæmdastjóra, bókhaldi og fjárreiðum. Með þessum hlutverkum eru hlutverk og ábyrgð stjórnar mörkuð lögum samkvæmt.Framkvæmd verkefna Stjórn útfærir síðan sjálf nánar hvað hún gerir til að sinna hlutverki sínu og hvernig hún sinnir því skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, sem kveður á um að stjórn setji sér reglur um framkvæmd starfa sinna. Slíkar starfsreglur fjalla t.a.m. um verkaskiptingu stjórnar, starfsáætlun, boðun og framkvæmd stjórnarfunda, ráðningu forstjóra o.s.frv. Laga- og samþykktaskilgreiningar á hlutverkum stjórna eru takmarkaðar en leiðbeiningar um framkvæmd verkefna stjórna þróast hratt með bættum stjórnarháttum. Slíkar leiðbeiningar og handbækur stjórnarmanna hafa hins vegar gengið skrefinu lengra og lagt til víðtækar skilgreiningar á hlutverkum stjórna – sem þaðan rata í starfsreglur. Hvorki leiðbeiningar né stjórn sjálf skilgreina hins vegar hlutverk hennar – ekki frekar en að skilgreina umboð hennar. Þá eru dæmi um að slíkar skilgreiningar á hlutverki stjórnar gangi of langt. Í starfsreglum fjölmargra stjórna segir til að mynda að stjórn beri „endanlega ábyrgð á starfsemi félagsins“. Slík alábyrgð á félagi með takmarkaða ábyrgð á sér enga lagastoð og efast má reyndar um upplýstan vilja stjórna til að axla slíka ábyrgð. Það er því fagnaðarefni að í 5. útgáfu af Leiðbeiningum um stjórnarhætti sem Viðskiptaráð gaf út á dögunum hefur lögboðið hlutverk stjórna réttilega verið afmarkað. Hvorki meira né minna. Einstökum stjórnum er síðan falið að útfæra stjórnarhætti sína og verkefni í starfsreglum. Skilgreining á hlutverki og umboði stjórnar er hins vegar ekki þar á meðal – heldur fara löggjafinn og hluthafafundur með það vald. Endurskoðun stjórna á starfsreglum að þessu leyti er því ráðleg þannig að hlutverk stjórna séu skilgreind í takt við lög og samþykktir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
„Hvert er hlutverk mitt í stjórn hlutafélags og hvernig sinni ég stjórnarstörfum?“ eru algengar spurningar nýrra stjórnarmanna og jafnvel þeirra reyndari sem vilja tileinka sér bætta stjórnarhætti. Hér eru á ferðinni tvær grundvallarspurningar – sem reyndar eru af ólíkum meiði.Hlutverk Annars vegar er spurt um hlutverk stjórnar og ábyrgð, sem henni er m.a. falið skv. lögum um hlutafélög, samþykktum og ákvörðunum hluthafafunda. Ákvæði hlutafélagalaga kveða m.a. á um að stjórn fari með æðsta vald milli hluthafafunda, annist að skipulag og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi, móti stefnu til framtíðar og ráði og hafi eftirlit með framkvæmdastjóra, bókhaldi og fjárreiðum. Með þessum hlutverkum eru hlutverk og ábyrgð stjórnar mörkuð lögum samkvæmt.Framkvæmd verkefna Stjórn útfærir síðan sjálf nánar hvað hún gerir til að sinna hlutverki sínu og hvernig hún sinnir því skv. 5. mgr. 70. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, sem kveður á um að stjórn setji sér reglur um framkvæmd starfa sinna. Slíkar starfsreglur fjalla t.a.m. um verkaskiptingu stjórnar, starfsáætlun, boðun og framkvæmd stjórnarfunda, ráðningu forstjóra o.s.frv. Laga- og samþykktaskilgreiningar á hlutverkum stjórna eru takmarkaðar en leiðbeiningar um framkvæmd verkefna stjórna þróast hratt með bættum stjórnarháttum. Slíkar leiðbeiningar og handbækur stjórnarmanna hafa hins vegar gengið skrefinu lengra og lagt til víðtækar skilgreiningar á hlutverkum stjórna – sem þaðan rata í starfsreglur. Hvorki leiðbeiningar né stjórn sjálf skilgreina hins vegar hlutverk hennar – ekki frekar en að skilgreina umboð hennar. Þá eru dæmi um að slíkar skilgreiningar á hlutverki stjórnar gangi of langt. Í starfsreglum fjölmargra stjórna segir til að mynda að stjórn beri „endanlega ábyrgð á starfsemi félagsins“. Slík alábyrgð á félagi með takmarkaða ábyrgð á sér enga lagastoð og efast má reyndar um upplýstan vilja stjórna til að axla slíka ábyrgð. Það er því fagnaðarefni að í 5. útgáfu af Leiðbeiningum um stjórnarhætti sem Viðskiptaráð gaf út á dögunum hefur lögboðið hlutverk stjórna réttilega verið afmarkað. Hvorki meira né minna. Einstökum stjórnum er síðan falið að útfæra stjórnarhætti sína og verkefni í starfsreglum. Skilgreining á hlutverki og umboði stjórnar er hins vegar ekki þar á meðal – heldur fara löggjafinn og hluthafafundur með það vald. Endurskoðun stjórna á starfsreglum að þessu leyti er því ráðleg þannig að hlutverk stjórna séu skilgreind í takt við lög og samþykktir.
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar